Eftirspurn eftir mjólkurvörum Örnu eykst til muna Heimir Már Pétursson skrifar 10. október 2014 20:30
Eftirspurn eftir vörum frá Örnu í Bolungarvík hefur stóraukist eftir tæplega fjögur hundruð milljóna sekt Samkeppniseftirlitsins á Mjólkursamsöluna og umræður um einokunarstöðu hennar á markaði hófust. Mjólkursamsalan hefur nánast verið allsráðandi á mjólkurvörumarkaðnum í áratugi. En Hálfdán Óskarsson stofnandi Örnu í Bolungarvík segir fyrirtækið varla hafa undan að framleiða vörur sínar eftir að málefni Mjólkursamsölunnar urðu áberandi í fjölmiðlum. „Já það er töluvert mikil aukning hjá okkur núna þessa dagana. Við erum bara á fullu að framleiða til að mæta því,“ segir Hálfdán. Og vöruúrvalið er að aukast því í næstu viku kemur laktosfrír fetaostur á markaðinn frá Örnu. „Og svo erum við að koma með nýja skyrtegund því við höfum lent í smá vandræðum með rjóma. Við önnum ekki eftirspurn eftir rjóma þannig að við erum að reyna að framleiða meira skyr. Þá fáum við meiri rjóma til að mæta því,“ segir Hálfdán. Velvilji í garð fyrirtækisins hafi aukist merkjanlega að undanförnu. „Ég vona að fólk sýni okkur smá þolinmæði því þetta tekur náttúrlega smá tíma þegar þetta skellur svona á með fullum þunga. Þá tekur það smá tíma að fylla á hillur og eiga nóg af vörum,“ segir Hálfdán. Arna reið á vaðið með framleiðslu á laktosfrírri mjólk og það leið ekki á löngu þar til risinn á markaðnum, MS, svaraði með því að framleiða sams konar vöru. En það er greinilegt að viðskiptavinirnir eru tilbúnir til að gefa Örnu tækifæri, eins og heyra mátti á viðskiptavinum sem fréttastofan ræddi við í dag og sjá má viðtöl við í fréttinni hér að ofan.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira