Gagnrýna harðlega svik á samkomulagi um styrki til almenningssamgangna Stefán Árni Pálsson skrifar 11. október 2014 12:10 Óskar Steinn Ómarsson, formaður Bersans í Hafnarfirði.
Vegna fréttar sem birtist í Fréttablaðinu í morgun um það að þrjú hundruð milljónir vanti upp á að ríkið standi við samning sem gerður var við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu um almenningssamgöngur hafa aðildarfélög Ungra jafnaðarmanna á höfuðborgarsvæðinu sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu. Ungir jafnaðarmenn á höfuðborgarsvæðinu eru vonsviknir vegna svika ríkisstjórnarinnar eins og þau orða það. „Aðildarfélög Ungra jafnaðarmanna á höfuðborgarsvæðinu - Bersinn í Hafnarfirði, Hallveig í Reykjavík og Rannveig í Kópavogi - gagnrýna harðlega svik ríkisstjórnarinnar á samkomulagi um styrki til almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í yfirlýsingunni. Þar segir einnig að samkvæmt samkomulagi sem fulltrúar Vegagerðarinnar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu skrifuðu undir í maí árið 2012 sé ríkið skuldbundið til að styrkja almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu um einn milljarð á ári í áratug. Markmiðin með samningnum eru m.a. að stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda og að lækka samgöngukostnað heimila og samfélagsins alls. „Ég trúi því ekki að ríkisstjórnin ætli að svíkja þetta góða samkomulag án þess að taka um það einhverja umræðu, segir Óskar Steinn Ómarsson, formaður Bersans í Hafnarfirði. Það þýðir ekki að fara einhverja bakdyraleið og lækka smám saman framlögin á fjárlögum. Ríkisstjórnin verður að vera hreinskilin um hver stefna hennar er varðandi almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu, og við köllum eftir viðbrögðum innanríkisráðherra í þessu máli.“ Ljóst sé að til að leysa umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins og stuðla að minni mengun og bættu loftslagi þurfi að bæta almenningssamgöngur. „Félög Ungra jafnaðarmanna á höfuðborgarsvæðinu hvetja ríkisstjórnina til að standa við samkomulagið og gera viðeigandi breytingar á fjárlagafrumvarpinu.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira