Átján viðburðir á dagskrá Jafnréttisdaga Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. október 2014 10:18 Jafnréttisdagar fara nú fram í sjötta sinn.
Bíókvöld, málþing, tónleikar, Pub Quiz, fyrirlestrar, stefnumót, sýningar og sviðslistir eru allt hluti af glæsilegri dagskrá Jafnréttisdaga Háskóla Íslands sem hefjast í dag og standa til 17. október. Dagarnir eru nú haldnir í sjötta sinn og í tilkynningu frá HÍ segir að þeir taki til jafnréttis í víðum skilningi en sjónum verði beint að jafnréttismálum bæði innan og utan skólans. Í ár eru 18 fjölbreyttir viðburðir á dagskrá sem allir snúast um jafnrétti frá mismunandi hliðum. Markmiðið með Jafnréttisdögum er að stuðla að fræðslu og aukinni umræðu og skilningi á jafnréttismálum, innan sem utan háskólasamfélagsins, og stuðla að því að gera jafnréttismál sýnilegri. Meðal þess sem verður rætt á Jafnréttisdögum er valdastaða ólíkra hópa samfélagsins, staða kvenna í kvikmyndum, hvítleiki og rasismi, miðlun tungumála, jafnrétti í námi, Íslendingar og íslensk menning frá sjónarhóli gestsins, Rauðsokkur og frjálsar fóstureyðingar, málefni blindra nemenda í háskólasamfélaginu, birtingarmyndir fatlaðs fólks í fjölmiðlaorðræðu og málefni flóttafólks. Sumir viðburðir eru á ensku og enn aðrir eru með táknmálstúlkun. Opnunarviðburður Jafnréttisdaga verður haldinn í Stúdentakjallaranum í kvöld kl. 20-22 en þar verður íslensk menning sett undir smásjána. Meðal annarra viðburða má nefna að nemendur Listaháskóla Íslands verða með fjölbreytta sýningu á Háskólatorgi þar sem áhersla er lögð á tengsl kynjafræði og sviðslista og möguleika lista til að skapa umræður um samfélagsleg málefni. Sýningin „Lætur ekkert stöðva sig“ verður á fyrstu hæð á Háskólatorgi og Kaffi Gæs hellir upp á kaffi á Menntavísindasviði 10. október. Lokapunkturinn er svo settur aftan við Jafnréttisdaga með Straight Friendly partýi í Stúdentakjallaranum 17. október þar sem ýmsu verður snúið á hvolf.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira