Borgarskjalasafn Reykjavíkur fær einstakar heimildir Stefán Árni Pálsson skrifar 6. október 2014 10:34 Guðfinna Guðmundsdóttir og Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður að skrifa undir samning um afhendingu á safni. mynd/aðsend
Guðfinna Guðmundsdóttir hefur afhent Borgarskjalasafn Reykjavíkur til varðveislu einkaskjalasafn Dr. juris Björns Þórðarsonar, sem var forsætisráðherra utanþingsstjórnar á miklum umbrotatíma 1942 til 1944. Guðfinna er tengdadóttir Björns. Safnið ku vera mjög viðamikið, alls 32 öskjur og nær yfir ævihlaup Björns, bæði í einkalífi, starfi og sem stjórnmálamaður. Safnið inniheldur mikið af heimildum um sjálfstæðisbaráttu og lýðveldisstofnun Íslendinga sem ekki hafa áður verið aðgengilegar fræðimönnum og almenningi. Sumt af þessu eru einstakar heimildir, til dæmis dagbækur Björns og minnisbækur frá þeim tíma þegar hann var forsætisráðherra. Þær gefa ótrúlega skemmtilega innsýn bak við tjöldin á þessum umbrotatíma. Borgarskjalasafn Reykjavíkur hefur ljósmyndað umræddar dagbækur og minnisbækur og mun formlega gera þær aðgengilegar öllum á afmælisdegi safnsins þriðjudaginn 7. október en þá mun safnið halda upp á 60 ára afmæli sitt. Borgarskjalasafn Reykjavíkur varðveitir nú heilstæð einkaskjalasöfn þriggja forsætisráðherra. Auk Björn Þórðarsonar varðveitir safnið skjalasafna Bjarna Benediktssonar og Ólafs Thors. Öll söfnin hafa verið skráð og er hægt sækja um aðgang að þeim.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira