„Getum ekki ímyndað okkur Vopnafjörð án Vinavikunnar“ Stefán Árni Pálsson skrifar 7. október 2014 10:14 Meðfylgjandi eru myndir frá undirskriftinni.
Nú er Vinavika á Vopnafirði og stendur æskulýðsfélag Hofsprestakalls – Kýros fyrir vikunni í fimmta skiptið. Í gær var skrifað undir Vinasamning við Vopnafjarðarhrepp, Vopnafjarðarskóla og leikskólann Brekkubæ. Í samningnum segir m.a. að aðilar samningsins taki upp forskeytið „Vinur” fyrir framan nafn sitt á og heiti á meðan Vinavikan stendur yfir. Vina-Vopnafjörður, Vina-Vopnafjarðarskóli og Vina-leikskólinn Brekkubær. Oddviti og sveitarstjóri skrifuðu undir fyrir hönd Vopnafjarðarhrepps og skólastjóri og leikskólastjóri ásamt fulltrúum nemenda fyrir hönd skólanna. Eftir undirskriftina var boðið upp á Vinaköku, kaffi og djús. Jafnframt höfðu krakkarnir fyrr um daginn skreytt fyrirtæki og stofnanir á Vopnafirði með blöðrum, hjörtum, borðum og vinalegum skilaboðum. Óhætt að segja að Vopnafjörður sé orðin vinalegur og verður enn vinalegri á næstu dögum.Í dag mega íbúar Vopnafjarðar eiga von á óvæntum glaðning frá æskulýðsfélaginu. Litur Vinavikunnar er bleikur og á morgunn miðvikudag verður bleikur dagur og má segja að við tökum forskot á bleika dag Krabbameinsfélagsins. Þá eru allir hvattir til að klæðast bleiku og einnig fara unglingarnir um bæinn á dráttavél, knúsa og skreyta bæinn með bleikum borðum og mála hann bleikan. Á fimmtudag verður Vinaskrúðganga og svo er öllum boðið í Vinakökuboð í félagsheimilinu, en í fyrra var fullt út af dyrum. Á föstudaginn er knúsdagurinn og Vinavikunni lýkur með kærleiksmaraþoni, Vinabingó, Vinamessu, pítsuveislu og flugeldasýningu.Harpa Lind, nemandi í 9. bekk, Bryndís og Hugrún nemendur í 10. bekk virðast vera nokkuð sáttar við Vinavikuna: „Til að vera góðar fyrirmyndir og sýna gott fordæmi í samfélaginu. Okkur finnst Vinavikan vera mjög uppbyggjandi og skemmtileg vika. Undirbúningurinn er auðvitað frekar erfiður en algjörlega þess virði. Við hvetjum alla til að taka upp Vinaviku og leggja sitt að mörkum í samfélaginu. Nú getum við ekki Ímyndað okkur Vopnafjörð án Vinavikunnar, því sá er vinur sem í raun reynist.“ Fram kemur í tilkynningu frá Vopnarfjarðarbæ að tilgangur vikunnar sé að minna á hin sönnu verðmæti lífsins; vináttuna og kærleikann. Meðan vikan stendur yfir eru allir hvattir til taka þátt og sýna umhyggju; heilsa, vinka, brosa, heimsækja, rétta hjálparhönd. Unglingarnir í æskulýðsfélaginu standa fyrir fjölbreyttri dagskrá og óvæntum viðburðum með almennri þátttöku bæjarbúa í dagskránni. Framkvæmdin er í höndum 20 unglinga sem leggja sig fram um að vel takist til með lífsgleðina í fyrirrúmi.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira