Segja stefnu SUS gegnsýrða „óheftri nýfrjálshyggju“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 7. október 2014 11:38 Í ályktuninni lýsir SUF yfir fullum stuðningi við ríkisstjórnarsamstarf Framsóknar-og Sjálfstæðisflokks. Vísir/Valli
Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) hefur sent frá sér ályktun þar sem ályktun Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) frá því um helgina er svarað fullum hálsi. Í ályktuninni lýsir SUF yfir fullum stuðningi við ríkisstjórnarsamstarf Framsóknar-og Sjálfstæðisflokks og gerir alvarlegar athugasemdir við rangfærslur SUS. SUF segir Framsóknarmenn ekki hafa lagst gegn komu verslunarkeðjunnar Costco til Íslands. Þeir hafi hins vegar hafnað því að landslögum væri breytt svo hægt væri að koma til móts við eitt fyrirtæki en ungir sjálfstæðismenn séu greinilega til í „að láta kröfur stórfyrirtækja ráða því hvernig lög landsins líta út,“ líkt og segir í ályktuninni. SUF segir Framsókn ekki hafa lagst gegn skattalækkunum og SUF lýsir yfir mikilli ánægju með skuldaleiðréttingu ríkisstjórnarinnar. Það sé „dapurlegt dapurlegt að sjá andstöðu ungra sjálfstæðismanna við að heimili landsins fái í einhverjum mæli að njóta þeirra afskrifta sem þegar hafa farið fram á lánum til heimilanna þegar þau voru færð milli fjármálastofnanna m.a. undir handleiðslu ríkisins.“ Þá segir jafnframt í ályktuninni að SUF lýsi yfir áhyggjum af öfgakenndri hugmyndafræði sem birtist í nýsamþykktri stefnu SUS en ungir Framsóknarmenn segja stefnu gegnsýrða af „óheftri nýfrjálshyggju.“ Ályktunina í heild má sjá hér að neðan.Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna lýsir yfir fullum stuðningi við ríkisstjórnarsamstarf Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks og gerir alvarlegar athugasemdir við rangfærslur Sambands ungra sjálfstæðismanna.Athugasemdir við stjórnarsamstarfið byggja á rangfærslumAthugasemdir SUS við stjórnarsamstarfið virðast ýmist byggðar á rangfærslum eða pólitískum öfgum. Svo dæmi sé tekið hafa Framsóknarmenn ekki lagst gegn komu verslunarkeðjunnar Costco, til landsins, þeir hafa þvert á móti fagnað möguleikanum á aukinni samkeppni í matvöruverslun. Framsóknarmenn hafa hins vegar hafnað því að landslögum sé breytt að kröfu eins fyrirtækis án frekari skoðunar. Ungir sjálfstæðismenn virðast hins vegar tilbúnir til að láta kröfur stórfyrirtækja ráða því hvernig lög landsins líta út. Framsóknarmenn hafa heldur ekki lagst gegn skattalækkunum. Þvert á móti hafa þeir lýst efasemdum um hækkun neðra þreps virðisaukaskatts og viljað fá staðfestingu á því að heildarálögur á almenning, sérstaklega þá tekjulægri, komi til með að lækka með breytingum á skattkerfinu eins og forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa lagt áherslu á. Þá lýsir Samband ungra framsóknarmanna yfir mikilli ánægju með skuldaleiðréttingu ríkisstjórnarinnar sem er til þess fallin að létta byrðar þeirra sem urðu fyrir forsendubresti með verðtryggð húsnæðislán sín eftir hrunið 2008 og þannig koma til móts við þann hóp sem setið hefur eftir. Það er dapurlegt að sjá andstöðu ungra sjálfstæðismanna við að heimili landsins fái í einhverjum mæli að njóta þeirra afskrifta sem þegar hafa farið fram á lánum til heimilanna þegar þau voru færð milli fjármálastofnanna m.a. undir handleiðslu ríkisins. Samband ungra framsóknarmanna sér ástæðu til að benda á að landsfundur Sjálfstæðisflokksins var ósammála SUS um þetta eins og margt annað, enda er það undarlegt viðhorf að fjármálakerfið eigi að hafa heimili landsins að féþúfu og innheimta að fullu lán sem þegar hafa verið færð niður. Ungir sjálfstæðismenn hverfi frá öfgafullri hugmyndafræðiSamband ungra framsóknarmanna lýsir áhyggjum af þeirri öfgakenndu hugmyndafræði sem fram kemur í nýsamþykktri stefnu Sambands ungra sjálfstæðismanna sem virðist gegnsýrð af óheftri nýfrjálshyggju. SUF fordæmir þær hugmyndir sem þar koma fram um einkavæðingu mennta- og heilbrigðiskerfisins og bendir á að sagan hefur fyrir löngu afsannað þá bábilju að frjálshyggjan sé besta jafnréttisstefnan. Óheft nýfrjálshyggja og einkavæðingarstefna í þeim anda sem fram kemur í stefnu SUS hefur aldrei leitt til samfélagslegra framfara eða bættra kjara fyrir almenning. Skammt er að minnast þess að SUS lagði fram fjárlagatillögur byggðar á svipuðum grundvelli undir yfirskriftinni „Sýnum ráðdeild“.Í tillögunum lýsa ungir sjálfstæðismenn vilja sínum til að leggja niður jafnréttissjóð, Jafnréttisstofu, Raunvísindastofnun Háskólans,Þjóðminjasafnið, Þjóðleikhúsið, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Launasjóð listamanna, Kvikmyndamiðstöð Íslands, Rannsóknarsjóð, Rannsóknarmiðstöð Íslands, Stofnun Árna Magnússonar, Fornleifavernd ríkisins, Fiskistofu, Hafrannsóknarstofnun, Verkefnasjóð sjávarútvegsins, Siglingastofnun og Flugmálastjórn, Jöfnunarsjóð sveitarfélaga svo dæmi séu tekin. Þá leggur SUS til að greiðslum til sérframlaga í fæðingarorlofssjóð, mæðra- og feðralauna, mannréttindamála, skógræktar, landgræðslu og þjóðgarðsins á Þingvöllum verði hætt og að Ísland leggi niður Þróunarsamvinnustofnun, hætti allri þróunaraðstoð og reyni þess í stað að auka velmegun í þróunarríkjum með því að ýta undir alþjóðaviðskipti. Samband ungra framsóknarmanna telur ástæðu til að hafa verulegar áhyggjur af því að ungliðahreyfing stærsta stjórnmálaflokks landsins sé föst í viðjum svo öfgakenndrar hugmyndafræði og skorar á SUS að hverfa frá henni.
Tengdar fréttir SUS vill slíta ríkisstjórnarsamstarfi að óbreyttu „Flokkur, sem kennir sig á tyllidögum við ábyrgð í ríkisfjármálum, á ekki að nýta áttatíu milljarða króna af almannafé til þess að greiða niður verðtryggð húsnæðislán tiltekins þjóðfélagshóps.“ 5. október 2014 20:31 Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fleiri fréttir Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Sjá meira
SUS vill slíta ríkisstjórnarsamstarfi að óbreyttu „Flokkur, sem kennir sig á tyllidögum við ábyrgð í ríkisfjármálum, á ekki að nýta áttatíu milljarða króna af almannafé til þess að greiða niður verðtryggð húsnæðislán tiltekins þjóðfélagshóps.“ 5. október 2014 20:31