Útgerðin hefur saxað verulega á skuldir Heimir Már Pétursson skrifar 9. október 2014 11:30 Kolbeinn Árnason framkvæmdastjóri LÍÚ segir stöðu útgerðarinnar sterka. Þörf sé á mikilli fjárfestingu og leggja verði veiðigjöld á með fyrirsjáanlegum hætti.
Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte telur að lækka þurfi veiðigjöld á útgerðina vegna lækkandi framlegðar, en á sama tíma hafa bæði arðgreiðslur til eigenda hækkað og skuldir útgerðarfyrirtækja lækkað um rúma 150 milljarða frá árinu 2009 Deloitte kynnti niðurstöður sínar um stöðu sjávarútvegsins á sérstökum sjávarútvegsdegi í gær. Þar kom fram að framlegð fyrirtækjanna er um 62 milljarðar árið 2013 en hún hefur minnkað um 15 milljarða frá árinu á undan. Skuldir útgerðanna hafa hins vegar lækkað töluvert frá árinu 2009 eða úr 494 milljörðum króna í 341 milljarð í lok ársins í fyrra. Útgerðirnar hafa fjárfest töluvert á undanförnum tveimur árum, eða um 17 milljarða árið 2012 en lækkaði niður í 11 milljarða í fyrra. Fyrirtækin greiddu eigendum sínum tæpa 12 milljarða í arð árið 2013 og hækkuðu um 6 milljarða. Núverandi ríkisstjórn hefur lækkað veiðigjöld á útgerðina umtalsvert en þau voru um 10 milljarðar árin 2012 og 2013 og telur Deloitte þörf á að lækkað þau enn frekar. Kolbeinn Árnason framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna segir stöðu útgerðarinnar sterka. Vissulega hefur framlegðin dregist aðeins saman en það er í sjálfu sér ekki hægt að kvarta undan afkomu útgerðarinnar eins og hún er í dag,“ segir Kolbeinn. Hvað veiðigjöldin varði leggi útgerðin áherslu á að þau fylgi afkomu útgerðarinnar og sett á með fyrirsjáanlegum aðferðum þannig að hægt að sé að taka tillit til þeirra í rekstrinum. Þá verði þau lögð á þannig að þau hamli ekki þróun innan greinarinnar. „Þetta er ákveðið ár frá ári með bráðabirgðaákvæðum. Þannig að kerfið er ekki uppsett. Ef á að ákveða á sama grunni veiðigjöld fyrir næsta ár og gert hefur verið undanfarin tvö, þrjú ár þá er það algerlega hulið okkur hvernig það verður gert. Við getum svosem áætlað eitthvað út frá því sem gert er núna. En það sem var gert í ár er öðruvísi en gert var fyrir ár,“ segir Kolbeinn. Nauðsynlegt sé að auka fjárfestingu í greininni þar sem fiskiskipaflotinn sé meira og minna um eða yfir 30 ára gamall. En það vekur auðvitað athygli að útgerðinni hefur tekist á einhverjum árum að lækka skuldirnar sínar um rúma 150 milljarða og það er nú ansi vel að verki staðið? „Já, eins og ég segi, ég dreg ekkert úr því að og við erum bara stoltir af því að afkoman hefur verið góð undanfarin ár. Vissulega var skuldastaðan orðin ansi slæm eftir hrun og það var nauðsynlegt að taka til. Góð rekstrarskilyrði og afkoma hafa síðan gert það að verkum að mönnum hefur tekist það,“ segir Kolbeinn Árnason.
Mest lesið Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Fleiri fréttir Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Sjá meira