Bjóða hefði átt út tollkvóta á smjöri Heimir Már Pétursson skrifar 9. október 2014 19:30
Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að aldrei hefði átt að leyfa Mjólkursamsölunni að flytja inn 90 tonn af smjöri fyrir jólin í fyrra. Þegar í ljós kom að skortur var á smjöri hefði átt að bjóða út tollkvóta til að stuðla að samkeppni með þessa vöru. Mjólkursamsalan flutti inn um 90 tonn af smjöri frá Írlandi í fyrra þegar í ljós kom að hún stæði frami fyrir skorti á smjöri og rjóma fyrir jólin. Nú eru rúm 30 tonn eftir af þessu smjöri í frystgeymslu norður á Akureyri og segir Mjólkursamsalan að það fari til fóðurgerðar fyrir kálfa þar sem það sé ekki lengur hæft til manneldis, en hin 60 tonnin voru aðallega notuð til ostagerðar. „Þetta vekur náttúrlega enn einu sinni athygli á fáránleika þessa máls frá A til Ö. Við náttúrlega gagnrýndum á sínum tíma alla málsmeðferð ráðgjafanefndar ráðuneytisins í inn- og útflutningi landbúnaðarvara á málsmeðferðinni,“ segir Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Mjólkursamsalan hafi fyrst sótt um tollkvóta þegar skortur á smjöri blasti við síðast liðið haust en síðan dregið þá umsókn til baka. Það hefði átt að hundsa afturköllun MS á beiðni um tollkvóta. „Og bjóða tollkvótana út. Með öðrum orðum, úr því þessi staða var komin upp að Mjólkursamsalan gat ekki framleitt upp í innanlandsþarfir að hleypa öðrum að þessu borði. Virkja einhverja samkeppni á þessum markaði. Það var ekki gert,“ segir Andrés. Eftirspurnin eftir mjólkurvörum hefur aukist mikið á undanförnum árum og innlend framleiðsla hefur varla undan þótt framleiðslan hafi verið aukin. Andrés segir aukninguna tugi milljóna lítra á örfáuum árum. „Þetta endurspeglast líka í því sem við sjáum á nautakjötsmarkaði. Það er nautakjötsskortur í landinu. Ástæðan er einfaldlega sú að bændur sjá sér meiri hag í því að nýta gripina í það að framleiða mjólk en að framleiða nautakjöt. Það er ein birtingarmynd þessarar stöðu,“ segir Andrés. Ein rökin fyrir innflutningshindrunum á landbúnaðarvörum hafa verið hollustuhættir en írska smjörið virðist ekki hafa reynst neytendum hættulegt.Þannig að í ykkar huga ætti að vera óhætt að hafa samkeppni á þessum markaði? „Að sjálfsögðu. Eins og á öllum mörkuðum. Við viljum frjálsa samkeppni á öllum mörkuðum, sama hvaða nafni markaðurinn heitir,“ segir Andrés Magnússon.
Tengdar fréttir Írska smjörfjallið fer allt í kálfafóður Í frystigeymslu á Akureyri eru 32 tonn af írsku smjöri sem flutt var inn fyrir jólin í fyrra. Smjörið mun fljótlega fara í kálfafóður fyrir kúabændur. 9. október 2014 07:00 Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fleiri fréttir Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Sjá meira
Írska smjörfjallið fer allt í kálfafóður Í frystigeymslu á Akureyri eru 32 tonn af írsku smjöri sem flutt var inn fyrir jólin í fyrra. Smjörið mun fljótlega fara í kálfafóður fyrir kúabændur. 9. október 2014 07:00