Innlent

Vonast til að drengurinn losni af gjörgæslu á næstu dögum

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Drengurinn er á gjörgæsludeild.
Drengurinn er á gjörgæsludeild. Vísir / GVA
Drengurinn sem brenndist illa í Brekkubæjarskóla er enn á gjörgæsludeild. Ekki er útlit fyrir að hann losni af spítalanum í bráð en vonast er til að hægt verði að færa hann af gjörgæslu á næstu dögum. Þetta segir vakthafandi læknir gjörgæsludeildar. Líðan drengsins er óbreytt.

Vísir fjallaði um málið í morgun en þá kom fram að drengurinn hafi þurft að undirgangast aðgerð við komuna á spítalann. Atvikið átti sér stað á mánudag en þá kviknaði á neyðarblysi sem drengurinn handlék í skólastofunni. Ekki liggur fyrir hvaðan drengurinn fékk blysið.


Tengdar fréttir

Eldur í Brekkubæjarskóla

Skólayfirvöld vinna nú að því að ná í foreldra yngstu barna skólans og biðja þau um að sækja börnin.

„Kennarinn brást hárrétt við“

„Þetta gerðist greinilega ótrúlega hratt,“ segir móðir barns í Brekkubæjarskóla en eldur kviknaði í grunnskólanum á Akranesi á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×