Búumst við ævintýralegri stemningu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2014 19:15
Stjarnan og ítalska stórliðið Inter mætast næsta miðvikudag í Evrópudeildinni og verður leikið á Laugardalsvelli. Það er þegar uppselt á leikinn og von á einstakri stemningu í Dalnum á miðvikudagskvöldið. Valtýr Björn Valtýsson fjallaði um Stjörnuliðið í kvöldfréttum Stöðvar tvö og ræddi bæði við rekstrarstjórann og heitasta framherja liðsins. Lið Internazionale hefur unnið átján Ítalíumeistara ásamt því að sigra í Meistaradeildinni þrisvar sinnum, síðast árið 2010. Í leikmannahópi félagsins eru sjö leikmenn frá Argentínu, sex ítalskir leikmenn, og fjórir Brasilíumenn svo eitthvað sé nefnt. Internazionale varð í fimmta sæti ítölsku deildarinnar á síðustu leiktíð og þjálfari liðsins er Walter Mazzarri en hann tók við liðinu í fyrra eftir að hafa verið þjálfari Napoli í fjögur ár. Stjarnan er í fyrsta sinn í Evrópukeppninni og liðið hefur slegið út Lech Poznan frá Póllandi, skoska liðið Motherwell og Bangor City frá Wales. Stjarnan er enn taplaus í Evrópudeildinni og markatalan er 14-4. Það seldist upp á leik Stjörnunnar og Inter á mettíma. „Ég held að það hafi selst upp hraðar en á Króatíuleikinn. Við byrjuðum okkar miðasölu klukkan tíu en ekki klukkan fjögur um nóttina," sagði Viktor Ingi Olsen, rekstrarstjóri Stjörnunnar, í léttum tón í viðtali við Valtý Björn Valtýsson í kvöldfréttum Stöðvar tvö. „Við búumst við ævintýralegri stemningu. Ef að það er eitthvað stuðningsmannalið á landinu sem ég treysti til að fylla Laugardalsvöllinn af stemningu þá er það Silfurskeiðin," sagði Viktor Ingi. Það verða samt fáir Ítalir á leiknum? „Við höfum aðeins fundið fyrir því á þessum ferðalögum okkar að það er erfitt að komast til Íslands og út. Ferðalagið er dýrt og erfitt en Ítalirnir verða um 60 fyrir utan þá sem ferðast með klúbbnum sem eru um hundrað manns," sagði Viktor Ingi. „Við Stjörnumenn finnum fyrir mikilli samkennd með Íslendinga og íslenskra knattspyrnuunnenda og þetta er með allra stærsta verkefni sem íslenskt knattspyrnulið hefur þurft að takast á við," sagði Viktor. Arnar Már Björgvinsson og félagar mæta þarna einu af stóru liðunum í Evrópu, með menn einsog Nemanja Vidic og Ranocchia í vörninni. „Ég ætla að klárlega að reyna að njóta þess að spila en auðvitað reyna að stríða þeim eitthvað aðeins. Það eru stór nöfn í þessu liði en það hafa líka oft verið stærri nöfn. Við erum að fara að mæta frábæru liði," sagði Arnar Már Björgvinsson. „Möguleikarnir okkar eru fínir ef við spiluðum svipað og við gerðum á móti Poznan. Það er allt hægt í fótbolta og við höfum bullandi trú á þessu. Þjálfarnir okkar eru búnir að berja því inn í hausinn okkar að þetta sé hægt," sagði Arnar Már. „Ég er búinn að halda með Inter síðan að ég man eftir mér og það yrði draumur að skora og þá sérstaklega að skora á San Siro," sagði Arnar Már en það smá allt innslagið hans Valtýs Bjarnar með því að smella á myndbandið hér fyrir ofan.
Evrópudeild UEFA Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Draumadráttur fyrir Stjörnumenn Lið Internazionale frá Mílanó verða fyrstu Meistaradeildarsigurvegararnir sem leika á íslenskri grundu. 9. ágúst 2014 08:00 Ótrúlegur árangur Stjörnunnar | Hvað sagði Twitter-samfélagið? Stjörnumenn komust fyrr í kvöld áfram í umspil um sæti í Evrópudeildinni eftir markalaust jafntefli gegn Lech Poznan á útivelli. 7. ágúst 2014 19:02 Króati á flautunni í leik Stjörnunnar og Inter Marijo Strahonja verður á flautunni þegar Stjarnan tekur á móti Inter deginum áður en hann verður 39 árs gamall. 13. ágúst 2014 23:00 Arnar Már fékk draum sinn uppfylltan Arnar Már Björgvinsson fær að spila á San Siro. 8. ágúst 2014 11:33 Ársmiðahafar bíða í röð eftir miðum á leikinn gegn Inter Stjarnan mætir Inter í Evrópudeildinni á miðvikudaginn og mikill áhugi er á miðum á leikinn. 14. ágúst 2014 12:30 Inter ekki tilbúið að víxla á leikdögum | Boltinn hjá UEFA Inter er hvorki tilbúið að færa fyrri leik liðsins gegn Stjörnunni fram um tvo daga né víxla á leikjum og liggur boltinn því hjá evrópska knattspyrnusambandinu að finna sameiginlega lausn. 8. ágúst 2014 13:15 Stjörnumenn halda áfram að semja við ungu strákana sína Stjörnumenn hafa mikla trú á árganginum sem skilaði félaginu Íslandsmeistaratitli í 2. flokki karla í fótbolta í fyrra og Þorri Geir Rúnarsson er fjórði leikmaðurinn úr þessum árangi sem fær nýjan samning. 11. ágúst 2014 12:15 Stjörnumenn skora á 23 mínútna fresti manni færri Stjörnumenn eru með frábæra tölfræði síðustu tvö sumur í Pepsi-deildinni þegar þeir spila tíu á móti ellefu. 15. ágúst 2014 06:00 Stjarnan mætir Inter Stjarnan mætir ítalska stórveldinu Inter í undankeppni Evrópudeildarinnar en dregið var í hádeginu í dag. 8. ágúst 2014 11:10 Tveir leikir Stjörnunnar færðir vegna leikjanna við Inter Mótanefnd Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið að breyta leikdögum á tveimur leikjum Stjörnunnar en þetta er gert vegna þátttöku Stjörnunnar í Evrópudeild UEFA. 11. ágúst 2014 16:58 Stuðningsmenn Poznan fögnuðu Stjörnumönnum í leikslok Sem kunnugt er komust Stjörnumenn áfram í umspil um sæti í Evrópudeildinni eftir markalaust jafntefli gegn Lech Poznan í Póllandi í gær. 8. ágúst 2014 08:08 Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Handbolti Fleiri fréttir Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Sjá meira
Draumadráttur fyrir Stjörnumenn Lið Internazionale frá Mílanó verða fyrstu Meistaradeildarsigurvegararnir sem leika á íslenskri grundu. 9. ágúst 2014 08:00
Ótrúlegur árangur Stjörnunnar | Hvað sagði Twitter-samfélagið? Stjörnumenn komust fyrr í kvöld áfram í umspil um sæti í Evrópudeildinni eftir markalaust jafntefli gegn Lech Poznan á útivelli. 7. ágúst 2014 19:02
Króati á flautunni í leik Stjörnunnar og Inter Marijo Strahonja verður á flautunni þegar Stjarnan tekur á móti Inter deginum áður en hann verður 39 árs gamall. 13. ágúst 2014 23:00
Arnar Már fékk draum sinn uppfylltan Arnar Már Björgvinsson fær að spila á San Siro. 8. ágúst 2014 11:33
Ársmiðahafar bíða í röð eftir miðum á leikinn gegn Inter Stjarnan mætir Inter í Evrópudeildinni á miðvikudaginn og mikill áhugi er á miðum á leikinn. 14. ágúst 2014 12:30
Inter ekki tilbúið að víxla á leikdögum | Boltinn hjá UEFA Inter er hvorki tilbúið að færa fyrri leik liðsins gegn Stjörnunni fram um tvo daga né víxla á leikjum og liggur boltinn því hjá evrópska knattspyrnusambandinu að finna sameiginlega lausn. 8. ágúst 2014 13:15
Stjörnumenn halda áfram að semja við ungu strákana sína Stjörnumenn hafa mikla trú á árganginum sem skilaði félaginu Íslandsmeistaratitli í 2. flokki karla í fótbolta í fyrra og Þorri Geir Rúnarsson er fjórði leikmaðurinn úr þessum árangi sem fær nýjan samning. 11. ágúst 2014 12:15
Stjörnumenn skora á 23 mínútna fresti manni færri Stjörnumenn eru með frábæra tölfræði síðustu tvö sumur í Pepsi-deildinni þegar þeir spila tíu á móti ellefu. 15. ágúst 2014 06:00
Stjarnan mætir Inter Stjarnan mætir ítalska stórveldinu Inter í undankeppni Evrópudeildarinnar en dregið var í hádeginu í dag. 8. ágúst 2014 11:10
Tveir leikir Stjörnunnar færðir vegna leikjanna við Inter Mótanefnd Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið að breyta leikdögum á tveimur leikjum Stjörnunnar en þetta er gert vegna þátttöku Stjörnunnar í Evrópudeild UEFA. 11. ágúst 2014 16:58
Stuðningsmenn Poznan fögnuðu Stjörnumönnum í leikslok Sem kunnugt er komust Stjörnumenn áfram í umspil um sæti í Evrópudeildinni eftir markalaust jafntefli gegn Lech Poznan í Póllandi í gær. 8. ágúst 2014 08:08