Fótbolti

Stærsti skandall í sögu pólskrar knattspyrnu - komið ykkur burt!

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Leikmenn Lech Poznan svekktir eftir úrslitin í Póllandi í gærkvöldi.
Leikmenn Lech Poznan svekktir eftir úrslitin í Póllandi í gærkvöldi. VÍSIR/ADAM JASTRZEBOWSKI
„Stærsti skandall í sögu pólskrar knattspyrnu! Komið ykkur allir burt! Sjáið 75 myndir frá skömminni.“

Svona hljómar fyrirsögn á stuðningsmannasíðu Lech Poznan, kkslech.com, sem fylgdist með leik liðsins gegn Stjörnunni í beinni textalýsingu í Poznan í gærkvöldi.

Eins og allir vita skildu liðin jöfn, markalaus, en þau úrslit dugðu Stjörnunni áfram í umspilið fyrir riðlakeppni Evrópudeildarinnar á meðan Pólverjarnir sitja eftir með sárt ennið.

„Þetta er ekki bara mesti skandallinn í sögu Lech Poznan, heldur vandræðalegustu úrslit í sögu pólskra félagsliða,“ segir í fréttinni.

Jóhann Laxdal og svekktur leikmaður Poznan í leikslok.VÍSIR/ADAM JASTRZEBOWSKI
Stuðningsmaðurinn, eða mennirnir, sem sáu um að uppfæra lesendur á síðunni voru vægast sagt sturlaðir af reiði í leikslok.

„Við, sem klæðumst þessari sömu treyju og leikmennirnir, eigum ekkert sameiginlegt með þeim. Þið vanvirðið okkur. Við viljum ekki tengjast þessum mönnum lengur,“ var skrifað í textalýsinguna þegar dómarinn flautaði til leiksloka.

Stjörnumönnum er hrósað mikið og bent á að stuðningsmenn Poznan hafi klappað fyrir Garðabæjarliðinu. „Við virðum Íslendingana. Þeir eru áhugamenn og fela það ekki. Þeir vörðust í báðum leikjum og nýttu sér einu mistökin okkar,“ er sagt.

Síðan var að hruni komin vegna álags í gær, en lesendum var bent margsinnis á það að fara ekki út úr textalýsingunni því forsíðan var niðri. Svo mikill var áhuginn á leiknum, eða væntanlega þessum óvæntu úrslitum.

Mariusz Rumak óttast að missa starfið.VÍSIR/ADAM JASTRZEBOWSKI
„Þetta er það versta sem ég hef upplifað,“ sagði markvörðurinn KrzysztofKotorowski á blaðamannafundi eftir leikinn, og þjálfarinn MariuszRumak var svo spurður út í stöðu sína.

„Það er ekki hægt að vinna leik þar sem maður skýtur ekki á markið. Nú þarf ég að hitta stjórnina á morgun og ræða framtíð mína. Ég veit ekki hvað gerist og ég veit heldur ekki af hverju við unnum ekki leikinn,“ sagði þjálfarinn.

Gærdagurinn og dagurinn í dag hafa ekkert verið neitt sérstakir fyrir pólska knattspyrnu. Fyrst féll liðið sem hafnaði í öðru sæti í fyrra, Lech Poznan, úr leik í Evrópudeildinni og í dag var meisturum Legia Varsjár hent úr Meistaradeildinni.


Tengdar fréttir

Stjarnan mætir Inter

Stjarnan mætir ítalska stórveldinu Inter í undankeppni Evrópudeildarinnar en dregið var í hádeginu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×