Giggs: Rooney vill ólmur byrja fyrsta leikinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. júlí 2014 22:45 Wayne Rooney á æfingu United í Los Angeles. vísir/getty
Manchester United hefur leik á Champions Cup-æfingamótinu í Bandaríkjunum aðra nótt þegar liðið mætir Los Angeles Galaxy.Wayne Rooney kom til móts við liðið á föstudaginn eftir auka hvíld vegna þátttöku sinnar á HM í Brasilíu og tók aðeins eina létta æfingu með liðinu áður en það flaug til Los Angeles. Þrátt fyrir það vill Rooney byrja leikinn á morgun, en hann vill eflaust sanna sig fyrir nýjum knattspyrnustjóra. Louis van Gaal stýrir United í fyrsta skipti á morgun. „Wayne vill ólmur byrja leikinn. Það vilja allir vera með. Wayne lítur vel út. Reyndar komu allir leikmennirnir sem voru á HM í góðu ástandi til baka,“ segir RyanGiggs, aðstoðarknattspyrnustjóri Man. Utd, í viðtali við Guardian. „Strákarnir sem voru á HM eru aðeins eftir á hvað varðar leikformið, en við erum líka með stráka sem komu tíu dögum fyrr.“ Ef Rooney byrjar leikinn gæti hann borið fyrirliðaband liðsins. Van Gaal á enn eftir að ákveða hver verður fyrsti fyrirliði Manchester United í hans stjórnartíð. „Það skiptir alltaf máli hver er fyrirliði. Það er mikill heiður að vera fyrirliði Manchester United. Það eru ekki margir sem upplifa það. Þetta er eitt af því sem ég ræddi við Louis,“ segir Ryan Giggs.
Enski boltinn Mest lesið KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Fleiri fréttir Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Sjá meira