Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Fram 2-0 | KR meistari meistaranna Kristinn Páll Teitsson í Laugardalnum skrifar 27. apríl 2014 00:01 Baldur Sigurðsson, fyrirliði KR, með bikarinn í Laugardalnum í dag. Vísir/Daníel
KR vann öruggan sigur á Fram í Meistarakeppni KSÍ í fótbolta á Gervigrasinu í Laugardal í dag. Kjartan Henry Finnbogason og EmilAtlason sáu um markaskorunina fyrir KR-inga. Vesturbæingar byrjuðu leikinn betur og átti Almarr Ormarsson stangarskot á þriðju mínútu leiksins. Meira bit var í sóknarleik Vesturbæinga og náðu þeir verðskuldað forystunni eftir rúmlega hálftíma leik. Brotið var á Almarri innan vítateigsins og steig Kjartan Henry á punktinn og skoraði af miklu öryggi. KR-ingar fengu færi til að bæta við mörkum í fyrri hálfleik en komu boltanum ekki framhjá Ögmundi Kristinssyni í marki Fram og var staðan því 1-0 fyrir KR í hálfleik. KR-ingar sátu örlítið aftar í seinni hálfleik og beittu skyndisóknum en upp úr því kom annað mark þeirra. Varamaðurinn Emil Atlason gerði út um leikinn þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum. Há sending kom inn fyrir varnarlínu Fram og Emil sem var fyrstur í boltann skoraði með föstu skoti í fjærhornið framhjá Ögmundi. Bestu færi Framara komu eftir það, Haukur Baldvinsson fékk besta færi þeirra í leiknum þegar hann komst inn í sendingu Arons Bjarka Jósepssonar og slapp inn fyrir vörn KR-inga gegn Stefáni Loga Magnússyni en renndi boltanum framhjá. Ásgeir Marteinsson fékk síðasta færi leiksins þegar hann fékk gott færi inn í vítateignum en skot hans var slakt og beint á Stefán Loga. Sannfærandi sigur KR-inga staðreynd sem litu vel út þrátt fyrir að sakna leikmanna í dag. Hvorki Óskar Örn Hauksson né Jónas Guðni Sævarsson voru á leikskýrslu í dag en nýju mennirnir, Almarr og Abdel-Farid Zato-Arouna komu vel inn í liðið og litu Íslandsmeistararnir vel út fyrir sumarið. Safamýrapiltar litu ágætlega út á köflum í dag en herslumun vantaði upp á í sóknarleik liðsins. Bestu færi liðsins komu upp úr skyndisóknum en örlítið vantaði upp á færanýtinguna. Stórvinirnir Atli Sigurjónsson og Gary Martin kátir með bikarinn. Rúnar: Kjartan er mikill leiðtogi„Þetta er frábær byrjun, við stefndum að því að vinna þennan leik og við erum virkilega ánægðir að ná því,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, sáttur eftir leikinn. „Ég er mjög ánægður með strákana, þeir lögðu sig alla fram hérna í dag. Það er góður andi í hópnum og við erum með góða leikmenn á bekknum sem eru tilbúnir. Það verða allir að vera tilbúnir að vinna saman til að ná árangri.“ Rúnar er ánægður með breiddina í liðinu en KR-ingar taka þátt í undankeppni Meistaradeildarinnar í ár. „Til þess að ná árangri þurfa allir að standa saman. Hópurinn er stór og sterkur og við þurfum að sjá til þess að mennirnir séu klárir í alla þessa leiki. Það mun vera álag á okkur en við skulum sjá til hversu langt við förum í hverri keppni.“ Sigurinn í dag var öruggur og Rúnar var ánægður með leikinn í heild sinni. „Við nýttum færin ekki nægilega vel og þá er alltaf hætta á því að fá mörk á sig og hleypa liðum aftur inn í leikina. Við spiluðum vel og náðum að skapa færi en færanýtingin hefði mátt vera betri.“ Rúnar var ánægður með Kjartan Henry í leiknum í dag. „Kjarri hefur lagt mikið á sig undanfarin tvö ár til þess að komast á þann stað sem hann er á í dag og hann á enn eitthvað í land. Hann spilaði vel í dag og er okkur reynslumikill og mikilvægur leikmaður. Hann er góður framherji sem kann að skora mörk og mikill leiðtogi, vonandi nær hann að halda heilsu,“ sagði Rúnar. Bjarni: Vorum að spila við besta lið Íslands„Ég ætla alls ekki að fagna því að tapa en mér fannst spilamennskan í dag heilt yfir nokkuð góð,“ sagði Bjarni Guðjónsson, þjálfari Fram, brattur eftir leikinn. „Þessi leikur heitir Meistarakeppnin en þetta er svona loka undirbúningur fyrir mótið sem er að hefjast. Það var gott að fá leik á þessum velli rétt fyrir Íslandsmótið þar sem við munum líklegast spila hér í upphafi móts,“ Bjarni sem tók við liðinu eftir síðasta tímabil sá jákvæða punkta fyrir átökin sem eru framundan. „Það voru fullt af jákvæðum punktum og við erum alltaf að reyna að læra. Stærstan hluta leiksins vorum við að spila vel en það er margt sem má laga bæði sóknarlega og varnarlega. Mér fannst bæði mörkin þeirra ódýr en sérstaklega seinna markið.“ Varnarleikur liðsins var flottur en liðinu gekk illa að skapa sér færi og komu bestu færi liðsins í leiknum úr skyndisóknum. „Við lögðum upp leikinn að reyna að nota skyndisóknir og það tókst ágætlega. Við vorum að spila við besta lið Íslands og við þurfum að bera smá virðingu fyrir því. Við ætluðum að reyna að halda hreinu og setja eitt mark sjálfir en það tókst ekki,“ Leikurinn fór fram á gervigrasinu í Laugardal en Fram mun leika fyrstu leiki sína á Íslandsmótinu á vellinum. „Völlurinn var mjög góður, það hefði mátt vökva hann aðeins meira til að auka flæðið og við erum að kanna möguleikann á því. Það var fínt að vera hér í dag, skjólsamt og gott veður svo við erum bara spenntir að byrja hér. Ég er eiginlega eins og lítið barn að bíða eftir jólunum þessa dagana,“ sagði Bjarni léttur að lokum. Baldur: Háleit markmið í öllum keppnum„Þetta er fín uppskrift að leik, setja eitt í hvorum hálfleik og að halda hreinu,“ sagði Baldur Sigurðsson, leikmaður KR, eftir leikinn. „Við spiluðum nokkuð vel í leiknum þótt ég sé ósáttur með færin sem við gefum þeim. Þeir fá bæði dauðafæri í stöðunni 0-0 í fyrri hálfleik og hérna undir lokin. Þetta eru hlutir sem við ætlum að koma í veg fyrir í okkar leik en við sluppum í dag.“ KR-ingar sem eru ríkjandi Íslandsmeistararar litu vel út í síðasta undirbúningsleik liðsins fyrir Íslandsmótið þrátt fyrir að það vantaði sterka leikmenn. „Hópurinn okkar er einfaldlega svona sterkur, það eru sterkir menn ekki í hóp og á bekknum. Þótt einhver leikmaður spili vel í einum leik getur hann verið kominn á bekkinn í næsta leik. Við erum með 20-22 leikmenn sem eru á svipaðri getu svo þetta lítur bara vel út.“ „Við stefnum hátt í öllum keppnum sem við tökum þátt í og við stefnum að sjálfsögðu á að ná árangri í öllum keppnum. Það er ekki hægt að koma inn í mót sem ríkjandi meistarar og vera ekki með háleit markmið.“ Baldur var nokkur ánægður með aðstæður en mikið hefur verið rætt um vallarmál undanfarnar vikur. „Spilkaflarnir í dag voru fínir en grasið var aðeins of þurrt fyrir minn smekk. Þetta var hinsvegar mun betra en grasið sem við getum boðið upp á þannig þetta var bara lúxus hérna í dag,“ sagði Baldur með bros á vör.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Shaq lofar að mæta í kjól ef Gobert verður valinn Körfubolti Mynd af yngstu dóttur Kobe Bryant vekur lukku Körfubolti Barcelona biður UEFA um leyfi Fótbolti Getur varla gengið lengur Sport Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Enski boltinn Sagt að hann spili ekki aftur meðan Craig er með liðið Körfubolti Mættur aftur tuttugu árum seinna Körfubolti „Það er ástæða fyrir því að ég vildi snúa aftur “ Íslenski boltinn Dagskráin: Fyrsti leikurinn á nýja KR-vellinum, ensk félög í beinni og formúla Sport Aukaspyrnumark Oumars tryggði Njarðvík stig í toppslagnum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aukaspyrnumark Oumars tryggði Njarðvík stig í toppslagnum „Það er ástæða fyrir því að ég vildi snúa aftur “ „Ótrúlegt að við skyldum ekki klára leikinn fyrr“ Uppgjör: FH - Fram 3-1 | FH-konur upp i annað sætið Keflvíkingar klúðruðu víti á nítugustu mínútu Leik lokið: Víkingur - Stjarnan 2-1 | Víkingar galopna fallbaráttuna í fyrsta leik undir nýrri stjórn „Hef mikla trú að það muni ganga upp núna“ Frá sólinni í Tampa yfir í Bestu deild kvenna á Íslandi „Okkur fannst þetta ekkert öðruvísi en aðrir leikir” Andrea Rán semur við FH Uppgjör: Breiðablik-Þróttur 3-1 | Blikakonur unnu toppslaginn Uppgjör: Valur-FHL 2-1 | Fanndís hetja Valskvenna Uppgjör: Tindastóll-Þór/KA 2-0 | Tindastóll byrjar vel eftir EM-frí „Það verða færi og bæði lið þurfa að vera klók“ Yfirlýsing frá KSÍ: Þrengt að þjóðarleikvanginum Cosic kominn í KR-búninginn Uppbótartíminn: „Þetta tók níu sekúndur“ KR í markmannsleit eftir meiðsli „Við erum ekki á góðum stað“ Enn leikmaður KR en nú lánaður til Lyngby Íþróttamaður HK til liðs við ÍA Snýr heim í toppliðið sem dreymir um Bestu Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin „Gerir þetta skemmtilegt fyrir deildina“ „Búnir að bíða í 1435 daga eftir að komast á toppinn“ Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Valsmenn tóku toppsætið af tíu Víkingum Sjáðu sigurmark Viktors og takta Hallgríms fyrir norðan Hnéð gott og getur spilað meira: „Ég er tilbúinn“ Fór úr ökklalið og fótbrotnaði í Lengjudeildarleik Uppgjörið: KA - ÍA 2-0 | KA sendi KR í fallsæti Sjá meira
Leik lokið: Víkingur - Stjarnan 2-1 | Víkingar galopna fallbaráttuna í fyrsta leik undir nýrri stjórn