Íbúar við Lýsisreitinn ekki tryggðir fyrir skemmdum Stefán Árni Pálsson skrifar 20. febrúar 2014 16:37 Íbúar á svæðinu hafa haft áhyggjur af tryggingarmálum. „
Verktakinn skrifaði undir yfirlýsingu á fundinum þar sem lofað var að lækka sprengikraftinn um helming til að koma til móts við íbúa á svæðinu,“ segir Birgir Þröstur Jóhannsson, arkitekt og formaður íbúasamtaka Vesturbæinga, í samtali við Vísi. Íbúasamtök Vesturbæjar boðuðu til fundar vegna framkvæmda við gamla Lýsisreitinn í Vesturbæ Reykjavíkur þann 11. febrúar. Fundurinn var haldinn með íbúum svæðisins og einnig voru viðstaddir fulltrúar frá tryggingarfélaginu VÍS, verkkaupa, verktaka og fulltrúar frá Reykjavíkurborg. Íbúar svæðisins hafa lýst yfir áhyggjum sínum vegna skemmda á húsnæði sínu. Unnið er að því að sprengja upp klöpp á reitnum með tilheyrandi ónæði fyrir íbúa. Sprengt er frá morgni til kvölds. Reisa á um 500 manna byggð á gamla Lýsisreitnum og þarf að sprengja tvisvar til fimm sinnum á dag til að hægt sé að fjarlægja jarðveg. Byggðin á reitnum er umdeild og framkvæmdirnar fara einnig illa í íbúa í grennd við framkvæmdasvæðið.Íbúar á svæðinu hafa haft áhyggjur af tryggingarmálum„Það kom fram á fundinum að íbúar á svæðinu eru ekki tryggðir fyrir skemmdum sem verða af völdum sprenginganna. Ástæðan fyrir því er að verktakinn hefur verið að sprengja innan lagalegra marka. Aftur á móti má enginn lagalega séð skemma eignir annarra. Ef verktakinn sættir sig ekki við að þurfa greiða tjónið þá þurfa eigendur bygginganna að leita réttar síns fyrir dómsstólum.“ Birgir segir að töluverð ánægja hafi verið með fundinn en ekki endilega ánægja með þau svör sem fram komu. „Það er vissulega mjög óþægilegt að heyra að maður sé ekki tryggður fyrir skemmdum. Það er einnig mjög óeðlilegt að enginn lög séu til varðandi ónæði almennt. Fundargestum fannst einnig mjög einkennilegt að það væri yfirleitt leyfilegt að sprengja inni í miðri borg. „Skemmdir hafa verið unnar Birgir segir að það sé ljóst að skemmdir hafa verið unnar á byggingum á svæðinu. „Í reglugerð heilbrigðiseftirlitsins varðandi sprengingar kemur fram að verktaki verði að passa upp á að skemma ekki eignir annarra við svæðið. Verktakinn er einfaldlega ekki að fylgja þeirri reglugerð. Það eru komnar fram sprungur við nokkrar byggingar og síðan er spurning hvernig þetta fer með lagnir og annað slíkt." Íbúasamtök Vesturbæjar hafa farið fram á það við Reykjavíkurborg að leyfa ekki sprengingar á svæðum þegar ekki er búið að ganga frá tryggingamálum. „Við förum fram á það að tryggingar fyrir skemmdum liggi alltaf fyrir þegar um sprengingar eru að ræða, hvort sem það er undir eða yfir mörkum. Samtökin krefjast þess einnig að heilbrigðiseftirlitið taki yfir þennan ónægjuþátt. Heilbrigðiseftirlitið sér bara um ónæði varðandi hávaða en í dag eru enginn lög varðandi titring frá sprengingum og aðrar tegundir af ónæði.“
Tengdar fréttir „Hér hefur allt nötrað og skolfið fimm til sex sinnum á dag“ Íbúar nálægt Lýsisreitnum segja sprengingar þar vegna byggingaframkvæmda hafa valdið skemmdum á húsum þeirra. Þeir vilja bætur. Tilkynnt að sprengikraftur hafi verið innan leyfilegra marka reglugerðar. 14. febrúar 2014 10:28 Þurfum að læra að byggja í þéttri byggð Þörf er á skýrari verklagsreglum við framkvæmdir í þéttri byggð, segir Páll Hjaltason, formaður umhverfis- og skipulagsráðs. Tryggja verði að ekki verði aftur röskun eins og á Lýsisreitnum. Undrandi á afstöðu tryggingafélaga. 15. febrúar 2014 10:00 Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Sjá meira
„Hér hefur allt nötrað og skolfið fimm til sex sinnum á dag“ Íbúar nálægt Lýsisreitnum segja sprengingar þar vegna byggingaframkvæmda hafa valdið skemmdum á húsum þeirra. Þeir vilja bætur. Tilkynnt að sprengikraftur hafi verið innan leyfilegra marka reglugerðar. 14. febrúar 2014 10:28
Þurfum að læra að byggja í þéttri byggð Þörf er á skýrari verklagsreglum við framkvæmdir í þéttri byggð, segir Páll Hjaltason, formaður umhverfis- og skipulagsráðs. Tryggja verði að ekki verði aftur röskun eins og á Lýsisreitnum. Undrandi á afstöðu tryggingafélaga. 15. febrúar 2014 10:00