Velta fyrir sér lögmæti sprenginganna Stefán Árni Pálsson skrifar 11. febrúar 2014 11:12 Íbúar svæðisins hafa lýst yfir áhyggjum sínum um skemmdir á húsnæði. mynd/samsett
Íbúasamtök Vesturbæjar hafa boðað til fundar vegna framkvæmda við gamla Lýsisreitinn í Vesturbæ Reykjavíkur. Fundurinn verður með íbúum svæðisins en einnig hafa verið boðaðir fulltrúar frá tryggingarfélaginu VÍS, Verkkaupa, Verktaka og fulltrúar frá Reykjavíkurborg. Íbúar svæðisins hafa lýst yfir áhyggjum sínum um skemmdir á húsnæði en unnið er að því að sprengja upp klöpp á reitnum með tilheyrandi ónæði fyrir íbúa á svæðinu. Sprengt er frá morgni til kvölds. Reisa á um 500 manna byggð á gamla Lýsisreitnum og þarf að sprengja tvisvar til fimm sinnum á dag til að hægt sé að fjarlægja jarðveg. Byggðin á reitnum er umdeild og framkvæmdirnar fara einnig illa í íbúa í grennd við framkvæmdarsvæðið. Fundurinn fer fram í sal við Aflagranda 40 klukkan fjögur í dag.Ný 500 manna byggð mun rísa á gamla Lýsisreitnum í Vesturbæ Reykjavíkur.„Við í íbúasamtökum Vesturbæjar höfum áhuga á því aðstoða íbúa á svæðinu sem hafa miklar áhyggjur af stöðu mála,“ segir Birgir Þröstur Jóhannsson, arkitekt og formaður íbúasamtaka Vesturbæinga. „Íbúar eru mjög óánægðir með sprengingar á svæðinu og hafa orðið fyrir töluverðu ónæði. Húsin eru að hristast mikið og fólk veit í raun aldrei hvenær sprengingarnar eiga sér stað. Í hverfinu er mikið um fólk með smábörn og aðilar sem starfa að heiman.“ Birgir segir að íbúar við Lýsisreitinn hafi ítrekað upplifað að hlutir hafi verið að hrynja úr hillum og óttast þeir einnig að húsnæði þeirra séu einfaldlega að verða fyrir skemmdum í framkvæmdunum. „Við héldum fund í síðustu viku með þeim aðilum sem standa að sprengingunum og það kom lítið út úr þeim fundi. Því næst voru við beðin um að skipuleggja annan fund með aðilum frá borginni og tryggingarfélögum. Allir aðilar málsins hafa boðað komu sína.“ „Fyrst og fremst vilja íbúar vita hvort þessar framkvæmdir séu yfirleitt löglegar. Það er spurning hvort það sé leyfilegt að valda skemmdum á húsnæði þrátt fyrir að byggingarleyfi liggi fyrir.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira