Bíó og sjónvarp

Frozen sópar til sín verðlaunum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Teiknimyndin Frozen hlaut fimm verðlaun á nýafstaðinni Annie-verðlaunahátíð sem var haldin í 41. skiptið á laugardaginn vestan hafs.

Frozen var meðal annars valin besta teiknimynd síðasta árs og hlaut líka verðlaun fyrir tónlistina. Myndin er tilnefnd til tveggja Óskarsverðlauna, þar á meðal sem besta teiknimyndin, og hlaut Golden Globe-verðlaunin fyrir stuttu sem besta teiknimyndin.

Þá fékk teiknimyndin Monsters University tvenn Annie-verðlaun og Toy Story of TERROR fékk þrenn verðlaun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×