Bíó og sjónvarp

Bryan Cranston í stuttmynd aðstoðarmanns

Bryan Cranston
Bryan Cranston AFP/NordicPhotos
Bryan Cranston, sem vann Golden Globe-verðlaun á sunnudaginn sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir þættina Breaking Bad, kemur til með að leika í nýrri kvikmynd sem heitir Cold Comes The Night.

Á meðan að á tökum stóð efndi Cranston til keppni þar sem hann bauð aðstoðarmönnum og öðrum lægra settum á tökustað að senda til sín handrit að stuttmyndum og að hann myndi taka að sér aðalhlutverk í þeirri mynd sem honum litist best á.

Cranston stóð við þessi orð sín og hér að neðan má sjá afraksturinn.

Myndin heitir Writer's Block.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×