Mátti ekki segja frá tilvist dagbókar Aðalsteinn Kjartansson skrifar 10. október 2014 10:50 Hæstiréttur taldi rétt af skólastjóranum að afhenta dagbókina en að hún hefði brotið á friðhelgi nemandans með því að láta vita af tilvist bókarinnar til að byrja með. Vísir / GVA
Skólastjóri þarf að greiða fyrrverandi nemanda hálfa milljón í miskabætur fyrir að hafa upplýst ríkissaksóknara um tilvist dagbókar nemandans. Bókin var lögð fram í máli þar sem eiginmaður skólastjórans var ákærður fyrir kynferðisbrot gagnvart nemandanum. Eiginmaðurinn var sýknaður í málinu meðal annars á grundvelli þess sem fram kemur í dagbókinni.Mátti ekki segja frá Hæstiréttur kvað upp dóm í miskabótamálinu í gær en dómurinn taldi að skólastjórinn hafi rofið friðhelgi einkalífs nemandans með því að upplýsa saksóknara í málinu um tilvist dagbókarinnar. Skólastjóranum mátti að mati dómsins vera ljóst að með því að upplýsa um tilvist dagbókarinnar yrði efni hennar gert uppskátt og að slíkt myndi óhjákvæmilega rýra orðspor nemandans og gera hana ótrúverðuga í augum annarra.Fékk bókina senda í pósti Skólastjórinn fékk dagbókina ekki hjá nemandanum sjálfum heldur frá fyrirlesara á vegum forvarnasamtakanna Marita sem hafði verið með fyrirlestur fyrir 10. bekk skólans, þar sem nemandinn mætti. Að lokinni fræðslunni ræddi hún einslega við fyrirlesarann og sagði honum frá sínum persónulegu málefnum. Í kjölfarið sendi hún fyrirlesaranum dagbókina á rafrænu formi. Í dómnum kemur fram að í tölvupósti með dagbókinni hafi hún gefið fyrirlesaranum leyfi til að „senda brot eða taka saman eitthvað“ fyrir tómstundafulltrúa skólans eða fræðslustjóra sveitarfélagsins sem væru „manneskjurnar sem ég væri til í að tala við“. Hún tók hinsvegar sérstaklega fram að það mætti ekki senda þeim alla dagbókina. Þetta virti forvarnarfulltrúinn ekki sem sendi alla bókina á skólastjórann.Eðlilegt að afhenda dagbókina Rétturinn taldi eðlilegt að skólastjórinn hafi orðið við beiðni ríkissaksóknara um að afhenda dagbækurnar þegar beiðni um það kom fram. Aðeins það að upplýsa um tilvist hennar, að því er virtist að eigin frumkvæði og í því skyni að styðja við vörn eiginmanns síns í sakamálinu á hendur honum, hafi verið brot, eins og segir í dómnum. Nemandinn höfðaði einnig mál á hendur sveitarfélaginu þar sem skólastjórinn starfar en Hæstiréttur féllst ekki á að það ætti hlut að máli, brotið væri alfarið á ábyrgð skólastjórans.Hæstiréttur margklofinn Hæstiréttur klofnaði í þrennt í dómnum en einn dómaranna taldi að sýkna ætti bæði skólastjórann og sveitarfélagið þar sem ekki væri sannað að ólögmæt háttsemi skólastjórans hafi falið í sér meingerð sem veitti nemandanum rétt til miskabóta. Annar dómari taldi hinsvegar að sveitarfélagið væri líka brotlegt í málinu og að upphæð miskabótanna ætti að vera 300 þúsund krónum hærri. Með dómi Hæstaréttar var sýknudómi héraðsdóms í málinu snúið.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Innlent Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Innlent Fleiri fréttir Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Sjá meira