Þriggja mánaða barn um borð: Tilfinningin ólýsanleg Viktoría Hermannsdóttir skrifar 11. desember 2014 09:19 Hér er skipið við björgunaraðgerðir. Mynd/Landhelgisgæslan „
Tilfinningin að standa frammi fyrir svona verkefni er alveg ótrúleg og eiginlega ólýsanleg,“ segir Einar Valsson, skipherra á varðskipinu Tý. Á þriðjudag bjargaði áhöfn varðskipsins 408 flóttamönnum frá Sýrlandi af flutningaskipi sem statt var 165 sjómílur austur af Möltu. Neyðarboð bárust frá skipinu snemma um morguninn og var með aðstoð eftirlitsflugvéla mögulegt að staðsetja skipið. Var þá óskað eftir aðstoð Týs sem var skammt frá og kom varðskipið á staðinn um klukkan ellefu. Þetta er í annað sinn á viku sem áhöfnin bjargar stórum hópi flóttafólks en í fyrra skiptið var 390 manns bjargað af öðru flutningaskipi. Týr hefur verið að vinna undir merkjum Frontex, landamærastofnunar Evrópusambandsins. Átján manns eru í áhöfn Týs en þeir hafa farið nokkrum sinnum út frá árinu 2010 til þess að sinna verkefnum fyrir stofnunina en aldrei lent í jafn stórri björgunaraðgerð og nú. Einar segir fólkið hafa verið við erfiðar aðstæður í skipinu. „Þetta fólk var búið að vera á ferðalagi marga daga á sjó. Þarna var fólk alveg frá 3 mánaða barni og upp úr í aldri sem er að ferðast við mjög erfiðar og ómannúðlegar aðstæður,“ segir hann.Einar Valsson.Mynd/Vefur LandhelgisgæslunnarFerjun fólksins tók átta klukkustundir Þar sem engin áhöfn var til staðar á flutningaskipinu tóku varðskipsmenn yfir stjórn skipsins og settu stefnuna til lands ásamt Tý auk þess sem hlúð var að flóttafólkinu. Skömmu síðar stöðvaðist vél skipsins og var þá í samráði við ítölsk yfirvöld tekin ákvörðun um að flytja fólkið yfir í Tý og spænskt rannsóknarskip og þaðan til hafnar á Ítalíu. Um átta klukkustundir tók að ferja fólkið yfir í varðskipið og rannsóknarskipið með hraðbátum varðskipsins. 194 fóru yfir í spænska skipið og 214 í Tý. „Þetta er klárlega einn minnisstæðasti atburðurinn sem maður hefur lent í, í þessum verkefnum. Þetta er svo stórt og mikið og manni blöskrar að sjá allt þetta fólk á svona skipi þegar maður kemur að þessu,“ segir hann. „Þetta er 65 metra langt flutningaskip og megnið af fólkinu er undir þiljum og dvelst þá í lest skipsins og er þar bara í einum haug. Svo voru nú ekki alveg ákjósanlegustu aðstæður til að vera að standa í þessum flutningum á fólki sem er orðið þrekað af sjóveiki og næringarskorti,“ segir Einar.Blendnar tilfinningar Hann segist hafa skynjað mikinn feginleika og þakklæti frá fólkinu yfir að hafa komist úr skipinu. Fólkið komst til hafnar í gær og fór þá í læknisskoðun á Ítalíu og væntanlega í flóttamannabúðir í framhaldinu. Einar segir blendnar tilfinningar fylgja starfinu. „Maður er afskaplega glaður að geta veitt þessa hjálp. Þetta er fyrst og fremst lífsbjargandi vinna sem við erum að sinna hérna. Það gefur okkur heilmikið og heldur okkur kannski andlega á floti í þessum erfiðu aðstæðum,“ segir hann. Týr verður áfram á svæðinu við björgunaraðgerðir út janúar og verður því áhöfnin stödd þar yfir jólin.
Tengdar fréttir Áhöfnin á Tý bjargaði 408 flóttamönnum Áhöfn varðskipsins Týs bjargaði í gær 408 flóttamönnum af flutningaskipi sem var staðsett 165 sjómílur austur af Möltu. 10. desember 2014 08:13 Varðskipið Týr tók þátt í björgun 300 flóttamanna í nótt Varðskipið Týr tók í nótt þátt í björgun þrjú hundruð flóttamanna af stjórnlausu flutningaskipi um 165 sjómílur austur af Sikiley. 6. desember 2014 17:37 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira
Áhöfnin á Tý bjargaði 408 flóttamönnum Áhöfn varðskipsins Týs bjargaði í gær 408 flóttamönnum af flutningaskipi sem var staðsett 165 sjómílur austur af Möltu. 10. desember 2014 08:13
Varðskipið Týr tók þátt í björgun 300 flóttamanna í nótt Varðskipið Týr tók í nótt þátt í björgun þrjú hundruð flóttamanna af stjórnlausu flutningaskipi um 165 sjómílur austur af Sikiley. 6. desember 2014 17:37