Áhöfnin á Tý bjargaði 408 flóttamönnum Stefán Árni Pálsson skrifar 10. desember 2014 08:13 Týr við bryggju í Reykjavík. Vísir/Vilhelm
Áhöfn varðskipsins Týs bjargaði í gær 408 flóttamönnum af flutningaskipi sem var staðsett 165 sjómílur austur af Möltu en þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Neyðarboð bárust frá skipinu snemma í gærmorgun og var með aðstoð eftirlitsflugvéla mögulegt að staðsetja skipið. Var þá óskað var eftir aðstoð Týs sem var skammt frá og kom varðskipið á staðinn um klukkan ellefu. Þegar komið var að flutningaskipinu fóru fjórir varðskipsmenn um borð til að kanna ástandið um borð og virtist ástand flóttafólksins vera þokkalegt. Þar sem engin áhöfn var til staðar á flutningaskipinu tóku varðskipsmenn yfir stjórn skipsins og settu stefnuna til lands ásamt Tý auk þess sem hlúð var að flóttafólkinu. Skömmu síðar stöðvaðist vél skipsins og var þá í samráði við ítölsk yfirvöld tekin ákvörðun um að flytja fólkið yfir í Tý og spænskt rannsóknarskip og þaðan til hafnar á Ítalíu. Um átta klukkustundir tók að ferja fólkið yfir í varðskipið og rannsóknarskipið með hraðbátum varðskipsins en því verki lauk seint í gærkvöldi. Skipin stefna nú til suður Ítalíu og er áætlað að þau komi til hafnar um miðjan dag. Þetta er í annað skiptið á innan við viku sem áhöfn varðskipsins bjargar stórum hópi flóttafólks á Miðjarðarhafi en fyrir helgi tók áhöfnin þátt í björgun 390 manns af öðru flutningaskipi.
Tengdar fréttir Varðskipið Týr tók þátt í björgun 300 flóttamanna í nótt Varðskipið Týr tók í nótt þátt í björgun þrjú hundruð flóttamanna af stjórnlausu flutningaskipi um 165 sjómílur austur af Sikiley. 6. desember 2014 17:37 Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira
Varðskipið Týr tók þátt í björgun 300 flóttamanna í nótt Varðskipið Týr tók í nótt þátt í björgun þrjú hundruð flóttamanna af stjórnlausu flutningaskipi um 165 sjómílur austur af Sikiley. 6. desember 2014 17:37