Vorblóm eftir Eggert Pétursson boðið upp Ugla Egilsdóttir skrifar 21. nóvember 2013 10:00 Eggert Pétursson Fréttablaðið/Valli
Samtökin Sól í Tógó standa fyrir myndlistaruppboði í Hannesarholti þann 30. nóvember næstkomandi. Alda Lóa Leifsdóttir hjá samtökunum Sól í Tógó segir að markmiðið með uppboðinu sé að safna fyrir því sem upp á vantar til að byggja húsnæði fyrir börnin sem njóta verndar samtakanna. Margir þjóðþekktir listamenn gefa vinnu sína á uppboðið, en ágóðinn rennur allur til samtakanna. Eggert Pétursson myndlistarmaður er einn þeirra sem gefa mynd á uppboðið. Fréttablaðið hafði samband við hann. Eggert segist hafa slegið til vegna þess að honum leist vel á málefnið og það vildi svo til að hann var einmitt að leggja lokahönd á pínulítið olíumálverk (18×18 sentimetrar) sem honum fannst hæfa tilefninu. Myndin sem verður boðin upp á myndlistaruppboðinu er af blómi. „Aldrei þessu vant er þetta norskt blóm en ekki íslenskt. Ég dvaldi mikið síðasta vetur í Noregi og var aðeins að skoða það sem ég fann. Þetta er lítið, blátt skógarblóm sem birtist á vorin þegar snjóa leysir og heitir „blåveis“,“ segir Eggert. Sól í Tógó fékk styrk frá Þróunarsamvinnustofnun til að byggja húsnæði yfir þessa krakka sem eru um hundrað talsins. Húsnæðið á að vera tilbúið í mars. Þegar hefur verið keypt landsvæði og byggður veggur í kringum eignina. Veggurinn hindrar annað fólk í að byggja á landinu. „Ef maður festir sér hús þarna er ekki nóg að vera með pappírana upp á það. Maður þarf að byggja vegg til þess að koma í veg fyrir að aðrir byggi hús á landareigninni í leyfisleysi,“ segir Alda.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira