Eldgosið Ólafur opnar K-bar Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 5. september 2013 09:15 Ólafur Örn Ólafsson framreiðslumaður er smekkmaður á mat og flottur í tauinu. Hann opnar K-bar á Laugavegi á næstu dögum. mynd/vilhelm „
Mér finnst mjög gaman að vera fínn. Ég geng iðulega með bindi og spari set ég upp slaufu. Mér finnst líka mjög gaman að setja saman ólíka liti til að lífga upp á tilveruna. Til dæmis með appelsínugulu buxunum,“ segir Ólafur Örn Ólafsson veitingamaður þegar hann er spurður út í dress dagsins; appelsínugular buxur og köflótta skyrtu. Ólafur er annálaður smekkmaður þegar kemur að mat og drykk og því ekki að undra að það sama eigi við um klæðaburðinn. Hann vill þó ekki viðurkenna að hann velti fatnaði mikið fyrir sér, en samt! „Mér er alls ekki sama í hverju ég er. Ég eyði þó ekki miklum tíma í tískuverslunum, versla aðallega í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar og á nokkra jakka til skiptanna. Stundum kaupi ég líka skyrtur í sænska tískurisanum, þegar ég er í útlöndum. Annaðhvort vil ég föt sem duga lengi eða eru bara alveg einnota,“ segir hann. Í starfi sínu sem veitingamaður er Ólafur í vinnufötum. Hann segir það ekki hafa átt sérstaklega vel við sig og verið því fegnastur þegar hann fékk að vinna í eigin fötum. „Það hentar mér mun betur, að geta verið ég sjálfur, eldgosið sem ég er,“ segir hann hlæjandi. Ólafur stendur nú í ströngu, en hann opnar eigin veitingastað á næstu dögum, K-bar, á Laugavegi 74. Hann segir staðinn ekki eiga sinn líka á landinu. „Kóreskur matur er mjög vinsæll í heiminum í dag en hefur ekki ratað til Íslands, fyrr en núna. Eldhúsið á K-bar verður innblásið af kóreskum götumat með alls konar skemmtilegu á matseðlinum. Til dæmis heimalöguðu kimchi sem er hjartað í kóreanskri matargerð. Við ætlum að hafa bimbimbap og kóreskar tacos og „steamed buns“ með dæmigerðum kóreskum fyllingum og bjóða upp á skemmtilega og öðruvísi kokkteila, sem sumir verða bornir fram í könnum eða stórum flöskum sem fólk deilir með sér,“ segir Ólafur. Hann verður þá væntanlega ekki klæddur í stífan og staðlaðan búning á nýja staðnum? „Nei, alls ekki, stemningin hér verður svo létt og hress.“
Mest lesið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Fleiri fréttir Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Sjá meira