Áfram ófær um að loka Guantanamo Guðsteinn skrifar 4. janúar 2013 06:00 Obama segist hafa hugleitt að neita að undirrita lögin.nordicphotos/AFP
Barack Obama Bandaríkjaforseti undirritaði á miðvikudaginn lög um fjármögnun hernaðarumsvifa. Alls eru 633 milljarðar dala ætlaðir til þessa málaflokks á árinu, eða rúmlega 80.000 milljarðar króna. Þetta er þó nokkru lægri upphæð en Bandaríkjaþing hefur veitt til hersins á undanförnum árum, en samdrátturinn skýrist meðal annars af minni umsvifum hersins, einkum í Írak og Afganistan. Obama sagðist reyndar andvígur nokkrum ákvæðum lagabálksins, sem hann undirritaði engu að síður. Meðal annars gagnrýndi hann að áfram fylgdi lögunum ákvæði sem gera honum ókleift að flytja fanga frá Guantanamo-búðunum á Kúbu til fangelsa í Bandaríkjunum eða til annarra landa. „Ég er enn þeirrar skoðunar að starfræksla búðanna grafi undan þjóðaröryggi okkar með því að kasta fjármunum á glæ, skemmi fyrir samskiptum okkar við mikilvæga bandamenn og styrki óvini okkar,“ segir í yfirlýsingu sem Obama sendi frá sér við undirritun laganna. Eitt af helstu kosningaloforðum Obamas var að loka fangabúðunum á Kúbu og flytja grunaða hryðjuverkamenn í fangelsi í Bandaríkjunum, þar sem hægt yrði að draga þá fyrir bandaríska dómstóla. Meirihluti repúblikana á þingi hefur hins vegar beitt lagaákvæði af þessu tagi til að koma í veg fyrir að þau áform næðu fram að ganga. „Áratugum saman hafa ríkisstjórnir bæði repúblikana og demókrata lögsótt með góðum árangri hundruð hryðjuverkamanna fyrir alríkisdómstólum,“ sagði Obama og fór ekki dult með andstöðu sína. Í yfirlýsingu sinni segist Obama hafa hugleitt að neita að skrifa undir lögin af þessum ástæðum, eins og hann gerði á síðasta ári þegar hann undirritaði sams konar lög, en rétt eins og í fyrra hefði niðurstaðan orðið sú að nauðsyn þess að útvega hernum fé til að starfa áfram vægi þyngra en andstaða forsetans við hluta laganna. Niðurskurður á fjárframlögum til hersins er hluti af samkomulagi forsetans við þingmenn Repúblikanaflokksins sem gert var á síðustu stundu nú um áramótin.
Mest lesið Aron Can heill á húfi Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Erlent Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Innlent Hneig niður vegna flogakasts Innlent Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Innlent Lögreglan leitar tveggja manna Innlent Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Innlent Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Innlent Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Innlent Fleiri fréttir Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Biden hraunar yfir Clooney: „Hann má fokka sér“ Segjast hafa fengið rangar líkamsleifar Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Sjá meira