Margar eignir Íbúðalánasjóðs ekki hæfar til leigu Jón Júlíus Karlsson skrifar 5. desember 2013 21:03
Íbúðalánasjóður situr á fjölda íbúða sem eru í svo slæmu ásigkomulagi að ekki er hægt að leigja þær út. Yfir 1000 eignir Íbúalánasjóðs standa auðar þrátt fyrir mikla eftirspurn á leigumarkaði. Eignasafn Íbúðalánasjóðs taldi í lok október um 2.500 eignir um land allt og var tæpur helmingur í útleigu. Margar eignir standa auðar sem hefur vakið gremju leigjenda á markaði enda skortur á leighúsnæði víða mikill. Ekki hægt að leigja allar íbúðir sjóðsins út og það af skiljanlegum ástæðum. Í fréttatíma Stöðvar 2 í kvöld var litið í heimsókn í eina íbúð í miðborg Reykjavíkur. Ástand íbúðarinnar var ekki upp á marga fiska og telst hún í svo slæmu ásigkomulagi að sjóðurinn treystir sér ekki til að leigja hana út. Sjóðurinn getur varið 1.500 þúsund krónum í endurbætum á húsnæði en margar íbúðir eru í það slæmu ásigkomulagi kostnaður við endurbætur hleypur á milljónum. Gert er ráð fyrir að um 1.000 til 1.500 eignir bætist við í eignasafn íbúðalánasjóðs á næstu 16 mánuðum. Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir að það gæti tekið langan tíma að losa um eignasafn sjóðsins. „Það er ekki hlutverk sjóðsins að fara í meiriháttar endurbætur á eignum. Við höfum sett allt til leigu sem við getum leigt, miðað við þetta viðmið að setja ekki meira en eina og hálfa milljón í eign. Við getum ekki gengið lengra. Það er ekki markmiðið að láta eignir standa og láta þær grotna niður. Við leitum leiða til að koma eignum í sölu,“ segir Sigurður Erlingsson. Nánar í myndbandinu að ofan.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Innlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri sprauta sig með ólöglegu efni til að fá brúnni húðlit Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Sjá meira