Lífið

Einstakir vetrarleikar á Akureyri

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Iceland Winter Games fara fram í Hlíðarfjalli í marsmánuði.
Iceland Winter Games fara fram í Hlíðarfjalli í marsmánuði.
„Þetta er einstakt risamót sem við ætlum að halda í Hlíðarfjalli og það er á heimsmælikvarða,“ segir Davíð Rúnar Gunnarsson, viðburðastjóri hjá Viðburðastofu Norðurlands, sem stendur fyrir vetrarleikunum Iceland Winter Games. Um er að ræða vetrarleika þar sem keppt verður í ýmsum greinum en þó ber helst að nefna „free skiing“ og ýmsar snjóbrettagreinar.

„Markmið mótsins er að auka ferðamannastraum á Eyjafjarðarsvæðið og sýna að vettvangurinn er kjörinn til að halda skíðamót og stunda íþróttina,“ útskýrir Davíð Rúnar.

Eins og staðan er í dag, þá er gert ráð fyrir að um hundrað erlendir keppendur komi hingað til lands. Fimm Íslendingar eru skráðir til keppni í „free skiing“ en töluvert fleiri Íslendingar munu keppa á snjóbrettum. Hálft ár hefur farið í skipulagningu hátíðarinnar en ásamt Viðburðastofu Norðurlands standa að hátíðinni Red Bull, Akureyrarstofa, Hlíðarfjall, 66°Norður, Markaðsstofa Norðurlands og Icelandair.

Mótið er haldið í samvinnu við Norwegian Open sem er sambærilegt mót í Noregi.

Vinsældir „free skiing“ eru miklar:

Í Noregi er talið að séu 3 til 400.000 „free ski“-iðkendur og er aukningin mikil og hröð.

Um það bil 80% af skíðum sem seljast í Noregi eru „twintip“-skíði.

Sambærilegar tölur frá Evrópu eru um það bil 70%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.