Lífið

Deitar Victoria's Secret-fyrirsætu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
One Direction-sjarmörinn Niall Horan hefur sést spóka sig um London með Victoria‘s Secret-fyrirsætunni Barböru Palvin.

Nú nýverið borðuðu þau kvöldmat saman og fengu sér drykk á klúbb í borginni. Nokkrum dögum síðar sáust þau saman í bíó.

„Þau hlógu og grínuðust saman alla myndina og voru mjög afslöppuð. Maður sá að þeim leið vel í félagsskap hvors annars,“ segir einn gestur kvikmyndahússins.

Niall hefur ekki viljað tjá sig um ástarsambandið.

Niall er afar eftirsóttur um allan heim enda hefur strákasveitin One Direction gert allt vitlaust síðustu misseri.

Þeir lentu í þriðja sæti í breska X Factor árið 2010 en plöturnar þeirra þrjár, Up All Night, Take Me Home og Midnight Memories hafa slegið fjöldamörg met.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.