Missa sig ekki í smákökunum 12. desember 2013 00:00 "Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt samstarf. Þegar ég ákvað að skrifa bókina og gefa út kom aldrei annað til greina en að láta pabba teikna myndirnar,“ segir Gói. Faðir hans, Karl Sigurbjörnsson, fyrrverandi biskup Íslands, myndskreytir bók sonar síns. mynd/pjetur
Nýlega gaf leikarinn góðkunni Guðjón Davíð Karlsson, betur þekktur sem Gói, út fyrstu bók sína. Um er að ræða barnabókina Jólaandinn en hún er jólasaga fyrir alla fjölskylduna. Bókin er lauslega byggð á sýningunni Hinn eini sanni jólaandi eftir Góa sem sett var á svið fyrir síðustu jól í Borgarleikhúsinu. Gói segir að eftir að sýningum lauk hafi hann breytt sögunni og endurskrifað hana að hluta til og afurðin sé nú komin út hjá bókaforlaginu Uglu. „Þetta er búin að vera svakalega skemmtileg vinna við bókina enda alltaf gaman að fá hugmynd sem tekst að koma frá sér. Nú langar mig að skrifa fleiri bækur.“Listrænn pabbi Faðir Góa, Karl Sigurbjörnsson, fyrrverandi biskup Íslands, myndskreytir bókina en hann er að sögn Góa mjög góður teiknari. „Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt samstarf. Þegar ég ákvað að skrifa bókina og gefa út kom aldrei annað til greina en að láta pabba teikna myndirnar. Hann teiknaði alla afmælisdúka fyrir okkur systkinin þegar við vorum yngri og gerir enn fyrir börnin okkar. Svo teiknar hann enn þá jóla- og afmæliskort.“ Hann segir föður sinn þó hafa verið tregan til í upphafi og talið alla teikna betur en hann. „Ég hlustaði ekki á hann heldur keypti teikniblokk og tréliti og gaf honum. Hann kom svo með fyrstu skissur seinna sama dag. Hann er ótrúlega listrænn og nákvæmur og þetta er sannarlega búið að vera draumasamstarf.“Mikið jólabarn Sjálfur segist Gói vera mikið jólabarn. Þegar þau hjónin eignuðust barn tóku þau ákvörðun um að halda eigin jól heima hjá sér og hafa gert það síðan. „Inga kona mín er frábær kokkur en er svo yndisleg að leyfa mér að sjá að mestu um jólamatinn. Fyrir það er ég henni ævinlega þakklátur. Ég geri humarsúpu í forrétt og nóg af henni svo hægt sé að borða hana á jóladag með foreldrum mínum og tengdaforeldrum. Aðalrétturinn er þó ekkert heilagur, við höfum til dæmis verið með kalkúnaskip og hamborgarhrygg undanfarin ár.“Góðar mömmukökur Ein nýleg jólahefð á heimili þeirra hjóna er gerð jólasíldar en uppskriftina má finna hér til hliðar. „Rebekka og Gunni vinir okkar hafa gefið okkur síld en hana fáum við tilbúna til maríneringar. Það er ótrúlega gaman að prófa eitthvað nýtt heima fyrir og ég mæli svo sannarlega með henni. Við erum hins vegar ekkert að missa okkur í smákökunum. Það getur hins vegar ekkert stoppað mig þegar mamma gerir mömmukökur. Þá er ekki séns að afþakka. Úff, ég er orðinn svangur!“ Hjónin verða bæði að vinna eitthvað yfir jólahátíðina en stefnan er þó sett á að finna jólaandann og njóta tímans. „Kona mín er ljósmóðir og vinnur eitthvað yfir jólin. Sjálfur er ég að sýna í Mary Poppins en við erum dugleg við að finna lausa stund og njóta þess að vera saman. Þá er bara málið að leika sér við börnin, fara í göngutúra og fá sér síld. Svo er náttúrulega miðnæturmessan í Dómkirkjunni sem pabbi sér um. Það er ekki hægt að sleppa henni.“Uppáhaldsjólasíldin hans Góa5 kg af útvatnaðri síld í saltvatni3,5 lítrar vatn2 kg sykur2 laukar, sneiddir2 rauðlaukar, sneiddir2 stk. paprika, sneidd í ræmur½ pakki lárviðarlaufSvört og rauð piparkorn Síld skoluð vel og skorin í bita. 2 kílóum af sykri og 3,5 lítrum af vatni blandað saman og soðið. Sykurlögur kældur og síldinni blandað út í ásamt hálfum lítra af edikssýru. Sneidda lauknum bætt út í og paprikunni ásamt lárviðarlaufinu. Látið standa í minnst 4 daga á köldum dimmum stað. Smakkað til og ediki eða vatni bætt við eftir þörfum. Látið standa í 1-2 daga til viðbótar og svo sett í krukkur. Svörtum og rauðum piparkornum bætt út í krukkurnar.
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira