Verði ódýrara að versla á netinu Þorgils Jónsson og Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 7. desember 2013 07:00 Lagt er til í skýrslunni að erlendir seljendur, til dæmis Amazon sem er stærsti einstaki seljandinn, geti skráð sig í VSK-kerfið hér á landi. Mynd/AFP
Öll aðflutningsgjöld verða felld niður af sendingum frá útlöndum að verðmæti undir 2.000 krónum ef tillögur starfshóps um að efla og auðvelda póstverslun verða að veruleika. Hópurinn var skipaður í fyrrahaust og var falið að athuga þróun og regluverk í póstverslun hér og erlendis og gera tillögur um ráðstafanir til að „skapa póstverslun viðeigandi samkeppnisstöðu til hagsbóta fyrir neytendur og atvinnufyrirtæki“ eins og segir í þingsályktun. Skýrslan er fullbúin en hefur enn ekki verið birt opinberlega. Heimildir Fréttablaðsins herma hins vegar að þar sé meðal annars mælst til þess að aðflutningsgjöld verði felld niður af öllum sendingum að verðmæti undir 2.000 krónum að sendingarkostnaði frátöldum. Hingað til hafi þetta einungis átt við um hraðsendingar til lögaðila, en verði þetta að lögum gæti Íslandspóstur, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, losnað við að tollafgreiða handvirkt að minnsta kosti 28.000 sendingar á ári. „Þetta á eftir að einfalda margt hjá okkur,“ segir Brynjar Smári Rúnarsson, forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins. „Umsýslan með svona litlar sendingar er sú sama og með stórar sendingar þannig að þetta einfaldar og flýtir ferlum.“ Nýtt fyrirkomulag mun spara kaupendum hér á landi bæði tíma og peninga, en tekjur af aðflutningsgjöldum í ríkissjóð voru óverulegar, um ellefu milljónir á síðasta ári. Slík ákvæði eru í gildi í öllum OECD-löndum nema Íslandi. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir þetta fyrst og fremst til bóta fyrir neytendur því það eru þeir sem kaupa smápakka og muni niðurfelling gjalda ýta undir möguleika neytenda til að kaupa ódýrari vörur á ódýrari hátt. „Við styðjum þetta eindregið og vonum að þetta nái fram að ganga. Ég hefði viljað sjá upphæðina hærri en það verður ekki á allt kosið og þetta er alla vega áfangi,“ segir Jóhannes. Þá er einnig lagt til í skýrslunni að erlendir seljendur, til dæmis Amazon, sem hefur verið langstærsti einstaki seljandinn hingað til lands, og fleiri póstverslanir, geti skráð sig í VSK-kerfið hér á landi og innheimt virðisaukaskatt við sölu og skilað beint til ríkisins. Það mun bæði koma í veg fyrir að sendingar tefjist úr hófi fram, auk þess sem flutningafyrirtæki þarf ekki að innheimta umsýslugjald fyrir að reikna út aðflutningsgjöld á sendingar frá fyrirtækjum sem skráð eru í kerfið hér á landi. Þess má geta að Amazon hefur þennan hátt á við sendingar til um 65 landa. Loks má geta þess að í skýrslunni er einnig lagt til að farið verði í aðgerðir til að auðvelda neytendum að skila eða skipta vörum sem hafa verið pantaðar frá útlöndum.Lárus Ólafsson, lögfræðingur hjá Samtökum verslunar og þjónustu.Bitnar á innlendri verslun sem er ofurskattlögð „Við gerum athugasemdir í skýrslunni um niðurfellingu aðflutningsgjalda því okkur finnst varhugavert að stíga þetta skref án þess að kanna til hlítar áhrifin á innlenda verslun,“ segir Lárus Ólafsson, lögfræðingur hjá Samtökum verslunar og þjónustu. „Það eru mjög flókin og há gjöld á innflutning á vöru sem endurspeglast í endursöluverðinu hér á landi. Það er sjálfsagt að skoða hvernig sé hægt að létta undir með neytendum. En það skekkir samkeppnisleg sjónarmið að létta undir verslun frá útlöndum á meðan ofurskattlögð vara hér heima nýtur ekki sömu réttinda.“ Lárus segir samtökin taka undir margt gott sem komi fram í skýrslunni, til að mynda breytingu á VSK-kerfi. „Það sem er jafnt til hagsbóta fyrir alla og einfaldar okkar flókna kerfi er af hinu góða en það má aldrei einfalda svo mikið að það bitni á einhverjum hagsmunahópi, eins og verslunarmönnum í þessu tilfelli.“
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Innlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri sprauta sig með ólöglegu efni til að fá brúnni húðlit Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Sjá meira