Lífið

Pop-up stúdíó Ástu Kristjáns opnar

Marín Manda skrifar
Ásta Kristjánsdóttir.
Ásta Kristjánsdóttir. Mynd/Jasmin Siggeirsdóttir
Ásta Kristjánsdóttir, sem margir þekkja sem stofnanda Eskimo Models, E-Label, Reykjavik Fashion Festival og ATMO, hefur tekið myndir frá 17 ára aldri meðfram öðrum verkefnum. Nú hefur hún opnað stúdíó í Listhúsinu við Engjateig og algjörlega helgað sig ljósmyndun fyrir tímarit, auglýsingar og einstaklinga.

Þessa dagana er hún að vinna í svokölluðu „POP-UP studio“, samstarfsverkefni þriggja ljósmyndara í Bretlandi og á Íslandi, og skjóta þau upp kollinum og mynda fólk í ýmsum tilgangi. Næsta POP-UP studio verður í Bristol, en í Reykjavík er Pop-Up myndataka fyrirhuguð dagana 5.-20. desember hjá Ástu í Listhúsinu við Engjateig.

„Margir vilja eða þurfa að eiga góðar myndir af sér í ýmsum tilgangi; góða prófílmynd af sér fyrir vinnuna eða mynd til að setja á samfélagsmiðla sem nánast allir nota í dag. Sumir stækka myndirnar til að gefa sjálfum sér eða öðrum sem gjöf, og margir þurfa myndir t.d. fyrir viðtöl í fjölmiðlum. Eftirspurnin eftir prófílmyndum er mikil og standardinn nokkuð hár, fólk vill eiga mynd af sér sem gæti prýtt forsíðu tímarita,“ segir Ásta.

„Ég gæti ekki hugsað mér skemmtilegra starf, það er mjög gefandi að taka myndir af fólki því fjölbreytileikinn í starfinu er svo mikill.“ Ásta segist leggja áherslu á að búa til gott andrúmsloft fyrir myndatökuna sem skili sér aftur vel á myndunum. „Sumir trúa ekki að þeir geti myndast vel en finnst þeir svo líta út eins og stjarna á myndunum. Þá eru allir sáttir.“

Áhugasamir geta bókað myndatöku á vefsíðunni astakristjans.prosite.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.