Lífið

Vorblóm eftir Eggert Pétursson boðið upp

Ugla Egilsdóttir skrifar
Eggert Pétursson
Eggert Pétursson Fréttablaðið/Valli
Samtökin Sól í Tógó standa fyrir myndlistaruppboði í Hannesarholti þann 30. nóvember næstkomandi. Alda Lóa Leifsdóttir hjá samtökunum Sól í Tógó segir að markmiðið með uppboðinu sé að safna fyrir því sem upp á vantar til að byggja húsnæði fyrir börnin sem njóta verndar samtakanna. Margir þjóðþekktir listamenn gefa vinnu sína á uppboðið, en ágóðinn rennur allur til samtakanna.

Eggert Pétursson myndlistarmaður er einn þeirra sem gefa mynd á uppboðið. Fréttablaðið hafði samband við hann. Eggert segist hafa slegið til vegna þess að honum leist vel á málefnið og það vildi svo til að hann var einmitt að leggja lokahönd á pínulítið olíumálverk (18×18 sentimetrar) sem honum fannst hæfa tilefninu.

Myndin sem verður boðin upp á myndlistaruppboðinu er af blómi. „Aldrei þessu vant er þetta norskt blóm en ekki íslenskt. Ég dvaldi mikið síðasta vetur í Noregi og var aðeins að skoða það sem ég fann. Þetta er lítið, blátt skógarblóm sem birtist á vorin þegar snjóa leysir og heitir „blåveis“,“ segir Eggert.

Sól í Tógó fékk styrk frá Þróunarsamvinnustofnun til að byggja húsnæði yfir þessa krakka sem eru um hundrað talsins. Húsnæðið á að vera tilbúið í mars. Þegar hefur verið keypt landsvæði og byggður veggur í kringum eignina. Veggurinn hindrar annað fólk í að byggja á landinu. „Ef maður festir sér hús þarna er ekki nóg að vera með pappírana upp á það. Maður þarf að byggja vegg til þess að koma í veg fyrir að aðrir byggi hús á landareigninni í leyfisleysi,“ segir Alda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.