Tilvonandi stýrimenn með Erpi í brúðkaupsferðalag Kjartan Atli Kjartansson skrifar 21. nóvember 2013 10:43 Erpur Eyvindarson er öllum hnútum kunnugur á Kúbu. „
Þetta verður í fyrsta skipti sem ég fer til Kúbu sem fararstjóri,“ segir Erpur Eyvindarson tónlistarmaður, sem verður fararstjóri í útskriftarferð Stýrimannaskólans til Kúbu í janúar. „Menn vita að ég þekki allt sem er að gerast hjá ungu fólki á Kúbu. Ég þekki allt sem er sérstakt, allt sem er ekki í alfaraleið. Þeir hjá Stýrimannaskólanum höfðu því samband við mig. Þessi ferð verður rosaleg,“ segir Erpur. Hann er nú þegar búinn að skipuleggja ferðalagið ansi gaumgæfilega. „Við förum í nokkra leiðangra. Ég tek byltinguna fyrir, við skoðum líka starfsemi mafíunnar fyrir byltingu og svo munu strákarnir fá Jay-Z- og Beyoncé-túrinn. Við munum heimsækja sömu staði og hjónin heimsóttu í brúðkaupsferð sinni. Ég er búinn að komast að því hvað þau átu og drukku og strákarnir fá smjörþefinn af því,“ bætir Erpur við. Erpur hefur rík tengsl við Kúbu. Hann hefur dvalið þar langtímum saman og þekkir landið vel. „Ég hef verið þarna samtals hátt í tvö ár af lífi mínu. Ég hef ferðast mikið um landið, finnst það nauðsynlegt,“ segir Erpur og rifjar upp tíma á sérstökum stað: „Nýlega var ég í borginni Baracoa í austurhluta landsins. Það er ótrúlega fallegur staður. Ekkert ferðamannabull. Bara huggulegur, heimilislegur og notalegur staður. Maður labbar um í hálftíma og er þá kominn inn í frumskóg. Hreinlega magnað að upplifa þetta.“Baracoa á Kúbu er einn af uppáhaldsstöðum Erps.Erpur er ekki eingöngu að fara með Íslendinga til Kúbu, hann er einnig að koma með part af Kúbu til Íslands. „Í dag hefst Kúbönsk kvikmyndavika í Bíói Paradís. Sýndar verða sex frábærar kvikmyndir sem allir verða að sjá,“ segir Erpur. Hann hefur kynnt sér kúbanska kvikmyndagerð afar vel. „Það er magnað hvað Kúbaninn er duglegur að dæla út myndum. Kvikmyndaiðnaðurinn á Kúbu tók stakkaskiptum eftir byltinguna. Fyrir það voru menn kannski í mesta lagi að taka upp klámmyndir á hótelherbergjum. En eftir byltinguna hafa komið út margar stórmyndir,“ segir Erpur. Kvikmyndaskólinn á Kúbu er virtur og þekktur um allan heim. „Skólinn er mikið sóttur af fólki frá Suður-Ameríku og í raun af fólki víða að úr heiminum. Bara núna í fyrradag hitti ég stelpu frá Chile sem hafði farið í skólann.“ Kvikmyndavikan hefst með formlegum hætti í Bíói Paradís klukkan 19 í kvöld. Kúbönsk tónlist verður leikin og meðal annars verður boðið upp á kúbanskt romm og annað
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira