Tímamót í Tónskólanum Gunnar Leó Pálsson skrifar 16. nóvember 2013 13:00 Edda Borg Ólafsdóttir og Bjarni Sveinbjörnsson eru stolt af Jónasi Ásgeiri Ásgeirssyni harmóníkuleikara. fréttablaðið/stefán „
Fyrsta veturinn vorum við bara að kenna forskólakennslu, inni í Seljakirkju og í safnaðarsalnum og þá hófst hið góða samstarf kirkjunnar og skólans sem stendur enn í dag,“ segir Edda Borg Ólafsdóttir, skólastjóri Tónskóla Eddu Borg. Bjarni Sveinbjörnsson, tónlistarmaður og eiginmaður Eddu, hefur verið hennar hægri hönd í skólaumsjóninni. Það stendur mikið til í Tónskóla Eddu Borg því skólinn heldur upp á 25. starfsár sitt á skólaárinu en hann var stofnaður haustið 1989. Edda Borg var þá nýútskrifaður tónmenntakennari og kenndi tónmennt í Seljaskóla veturinn 1988-1989. Edda Borg segir að þá hafi hugmyndin að stofnun tónskólans kviknað, eftir að hafa séð þörfina fyrir tónlistarkennslu í hverfinu. „Í upphafi var ég í öllu, allt frá því að kenna á píanó til þess að ræsta skólann en nú hefur þetta aðeins breyst,“ segir Edda Borg létt í lund. Fljótlega flutti skólinn úr kirkjunni yfir í Hólmasel 4-6 og bættist hljóðfærakennsla við. Skólinn var þar þangað til haustið 2009, þá á tuttugasta starfsárinu, en þá flutti skólinn í nýtt og glæsilegt húsnæði í Kleifarseli 18. „Á fyrsta starfsári skólans voru nemendur um 70 talsins en núna nema um 150 nemendur við skólann,“ segir Edda Borg en nýja húsnæðið er virkilega glæsilegt og öll aðstaða til fyrirmyndar. „Píanóið hefur alltaf verið vinsælasta hljóðfærið en við kennum á flestöll hljóðfæri í dag en það eru sveiflur í vinsældum hljóðfæra á milli ára.“ Fram að þessu hefur skólinn sent nemendur frá sér þegar komið er áleiðis í náminu, en á undanförnum árum hefur hann í auknum mæli hafið samstarf við aðra tónlistarskóla svo unnt sé að bjóða nemendum upp allar þær aukagreinar og samspil sem þarf til að klára tónlistarnámið við skólann. „Í tilefni afmælisins ætlum við að brjóta upp kennsluna á næstu önn og hafa opna viku fyrstu vikuna í mars. Sú vika endar svo með afmælistónleikum í 8. mars í Seljakirkju, þar sem við viljum sjá fyrrverandi, núverandi og tilvonandi nemendur,“ útskýrir Edda Borg. Tónleikar skólans hafa alla tíð verið haldnir í Seljakirkju og er samstarfið mjög gott. „Skólinn er nú í fyrsta skipti að útskrifa nemanda af framhaldsstigi en Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmóníkuleikari verður með burtfararprófstónleika í Hannesarholti föstudaginn 22.nóvember og erum við mjög stolt af honum,“ segir Edda Borg. Hér að neðan má heyra og sjá tóndæmi af nýjustu plötu Eddu Borgar. Einnig er hér að neðan myndskeið af Jónasi Ásgeiri Ásgeirssyni harmóníkuleikara leika ljúfa tóna.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira