Lífið

Styrkja Ljósið um 2,5 milljónir

Erna Magnúsdóttir, forstöðumaður Ljóssins, tekur við styrknum frá Sollu á Gló.
Erna Magnúsdóttir, forstöðumaður Ljóssins, tekur við styrknum frá Sollu á Gló. Mynd/Brynjólfur
„Við völdum Ljósið vegna þess að það er svo frábært starf unnið þarna,“ segir Sólveig Eiríksdóttir, betur þekkt sem Solla á Gló.

„Þau þurfa meira fjármagn til að láta enda ná saman. Þetta er bara smádropi í hafið, en samt eitthvað,“ segir Sólveig jafnframt.

Lífræna vörumerkið Himneskt stóð fyrir árlegu söfnunarátaki sínu í október.

Söfnunin gekk út á að tíu krónur af hverri seldri Himneskt-vöru rynnu beint til styrktar Ljósinu. Ávinningurinn af átakinu, tvær og hálf milljón króna, var afhentur í vikunni.

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra.

Markmið Ljóssins er að fólk fái sérhæfða endurhæfingu og stuðning, þar sem fagfólk aðstoðar við að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.