Útbjó úrklippubók fyrir Svein Andra Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 9. nóvember 2013 15:45 Kristrún Ösp og Baltasar Börkur dvelja um helgina í góðu yfirlæti í sumarhúsi í Vaglaskógi. "Baltasar vaknar yfirleitt klukkan hálfsex á morgnana nema þegar hann sefur hjá pabba sínum. Þá er hann sennilega útkeyrður eftir stöðuga dagskrá og skemmtun þeirra feðga,“ segir Kristrún hláturmild. mynd/börkur birgisson
Það er jákvætt að halda feðradaginn hátíðlegan því hann minnir okkur á að hlutverk feðra er líka mikilvægt. Enn er mikið um að feður séu ekki viðurkenndir á sama hátt og mæður og ég er iðulega spurð í forundran hvernig ég geti eiginlega skilið ungan son minn eftir heila helgi hjá föður sínum í Reykjavík. Hví ætti pabbinn ekki að geta hugsað jafn vel um son sinn og ég? Mér finnst því aðkallandi að gera feðrum hærra undir höfði sem uppalendum og fyrirmyndum í lífi barna sinna,“ segir Kristrún Ösp, sem í tilefni feðradagsins færði barnsföður sínum, Sveini Andra Sveinssyni, persónulega úrklippubók fyrir hönd sonar þeirra, Baltasars Barkar. „Ég er hrifin af hvers kyns hefðum og vil endilega halda í þær,“ útskýrir Kristrún Ösp, sem lagði hug og hjarta í gjöfina. „Það er heilmikið dund að útbúa úrklippubók en sú vinna er bæði gefandi og skemmtileg. Mikilvægast er hafa hugfast hvað föðurnum þykir vænst um og vinna út frá því með dýrmætum myndum og fallegum texta. Ég valdi til dæmis ljóð eftir Katrínu Ruth sem mér þótti hæfa vel sambandi Baltasars við föður sinn,“ segir Kristrún sem af kostgæfni valdi myndir í úrklippubókina. „Sveinn Andri er áhugamaður um fótbolta og harður stuðningsmaður Manchester United. Því gladdi hann að fá mynd af syninum í Manchester United-treyju og hann hefur montað sig mikið af henni. Ég valdi einnig myndir af dýrmætum augnablikum í lífi þeirra feðga eins og frá skírnardeginum þegar Sveinn Andri og eldri systkin Baltasars komu norður og við áttum öll skemmtilega helgi saman. Allt eru þetta myndir sem vekja upp góðar minningar og mikilvægt fyrir Baltasar seinna meir að geta skoðað bókina og séð að allir voru vinir. Að þessu leyti eru persónulegar úrklippubækur ómetanlegar,“ segir Kristrún sem sjálf nýtur þess mjög að fá gjafir sem bera með sér hugsun og umhyggju fyrir henni sjálfri. „Sveinn Andri var djúpt snortinn yfir bókinni og sannarlega glaður. Hún kom á óvart og er gott veganesti og hvatning fyrir drenginn okkar að gleðja aðra með sams konar hætti í framtíðinni en frá fyrsta degi hefur hann auðvitað verið okkur öllum mikill gleðigjafi.“ Móðurhlutverkið bestKristrún Ösp fæddist á Akureyri sumarið 1990 og er uppalin nyrðra. Hún lýkur senn stúdentsprófi frá Verkmenntaskóla Akureyrar og stefnir á háskólanám að því loknu. „Um helgar er ég heimakær og nýt þess að vera með stráknum mínum. Ég hitti þó vinkonur mínar af og til en við erum allar komnar með börn og því púsluspil að hittast barnlausar að kvöldi til. Ég reyni þó að fara í leikhús eða annað menningarlegt um pabbahelgar og fer þá yfirleitt með Baltastar Berki suður því hann er of lítill til að fljúga einn síns liðs,“ segir Kristrún, sem sér fyrir sér að búa á Akureyri í framtíðinni og svipast nú um eftir íbúð til kaups. „Hér líður mér vel og þótt mér hafi þótt gaman að búa í Reykjavík um tíma finnst mér umhverfið þar of stressandi fyrir börn. Rólegheit sveitasælunnar eiga betur við mig. Vissulega er erfitt að búa í hvort í sínum landshlutanum og þægilegra ef pabbinn byggi í næsta nágrenni til að hafa almenna reglu á pabbahelgum en við gerum það besta úr aðstæðunum. Það er dýrt að fljúga á milli og á vetrum er veður óstöðugt. Þannig var Baltasar veðurtepptur í tvo daga vegna ófærðar um daginn og pabbi hans þurfti að fylgja honum norður með flugi. Upp úr stendur þó mikilvægi þess að þeir feðgar hittist eins oft og unnt er og myndi með sér góð og sterk tengsl,“ segir Kristrún, sæl í móðurhlutverkinu. „Að verða mamma er örugglega það besta sem komið hefur fyrir mig þótt stundum geti verið erfitt að vera ein. Kostirnir vega alltaf upp á móti, ég hef fjölskylduna að baki mér og móðurhlutverkið er algjörlega frábært.“
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira