Lífið

Örtröð myndast fyrir alvöru í dag

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Stelpurnar voru ánægðar með að vera komnar með Airwaves-armbandið sem veitir aðgang að tónlistarhátíðinni.
Stelpurnar voru ánægðar með að vera komnar með Airwaves-armbandið sem veitir aðgang að tónlistarhátíðinni. Mynd/Daníel
Vinkonurnar fimm, Anja, Antonia, Maritz, Charlotte og Kiki, fóru í gær að sækja armböndin sín á tónlistarhátíðina Iceland Airwaves sem hefst í dag.

Stúlkurnar eru allar frá Þýskalandi fyrir utan Maritz sem kemur frá Hollandi. Þær komu til landsins í gær og fóru samstundis að sækja armböndin sín enda mjög spenntar fyrir hátíðinni.

Að sögn Egils Tómassonar, starfsmanns hátíðarinnar, komu erlendir tónlistarmenn og gestir að sækja miðana sína í gær en hann telur að örtröðin muni myndast fyrir alvöru í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.