Sveiflukóngur gefur út jólaplötu Freyr Bjarnason skrifar 23. október 2013 10:00 yrsta jólaplata Geirmundar er væntanleg í næsta mánuði. „
Ég er búinn að vera með þennan draum í höfðinu í nokkur ár,“ segir Geirmundur Valtýsson. Tónlistarmaðurinn ástsæli gefur í næsta mánuði út sína fyrstu jólaplötu og nefnist hún Jólastjörnur Geirmundar Valtýssonar. „Það eru eintómar jólastjörnur sem flytja lögin fyrir mig og með mér. Það er gífurlega margt fólk sem kemur nærri þessu,“ segir hann og nefnir til sögunnar Helgu Möller, Siggu Beinteins, Pál Rósinkranz, Ara Jónsson og Berglindi Björk. Einnig syngja afadætur Geirmundar, þær Anna Karen Hjartardóttir og Valdís Valbjörnsdóttir sem eru átta og þrettán ára, í tveimur lögum. Lögin eru öll eftir Geirmund og tveir textar eru eftir hann. Um helmingur laganna er rólegur en á hinum er skagfirska sveiflan allsráðandi. Einvala lið tónlistarmanna aðstoðaði við upptökurnar, eða Magnús og Finnbogi Kjartanssynir, Gulli Briem og Vilhjálmur Guðjónsson. Aðspurður segist Geirmundur vera mjög sáttur við útkomuna. „Þetta verður alveg alvöru. Ég held að þetta verði mjög góð plata.“ Útgáfutónleikar verða haldnir í Miðgarði í Skagafirði 8. desember og verður þar öllu tjaldað til, að sögn sveiflukóngsins.
Mest lesið „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Lífið Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Lífið „Þetta kom mér jafnmikið á óvart eins og öðrum“ Tíska og hönnun Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Lífið Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Lífið Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Bíó og sjónvarp Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Lífið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Hvar eru þau nú? Lífið Fleiri fréttir „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Sjá meira