Bjóða til kaffisamsætis Friðrika Benónýsdóttir skrifar 27. september 2013 11:00 Viktor og Bjarki vilja viðhalda samtalinu milli lífsins og listarinnar, meðal annars með því að nýta það sem vex í nágrenninu til matargerðar. Þeir bjóða til haustfagnaðar á morgun þar sem gestir fá að bragða á uppskerunni. Fréttablaðið/GVA
Góðgresi efnir til haustfagnaðar á Loft hosteli á morgun. Þar verður boðið upp á afurðir unnar úr íslenskum jurtum. Viktor Pétur Hannesson er annar þeirra sem standa á bak við Góðgresi. Hann segir slagorðið „listin fyrir lystina“ lýsa starfseminni vel. „Góðgresi er samstarf mitt og vinar míns Bjarka Þórs Sólmundssonar og við köllum þetta listrænt matvinnsluverkefni,“ segir Viktor Pétur Hannesson myndlistarmaður beðinn að útskýra hvað felist í nafninu Góðgresi. „Við erum að nýta jurtir í íslenskri náttúru sem kannski hafa ekki verið mikið notaðar til matargerðar áður. Allt frá njóla og hvönn yfir í birki, kerfil og bláklukku, svo eitthvað sé nefnt. Hugsunin er að fólk líti í kringum sig og nýti það sem vex í nágrenninu til matargerðar.“ Þeir Viktor og Bjarki eru báðir myndlistarmenntaðir og kynntust einmitt í náminu við LHÍ. „Bjarki var reyndar búinn að læra kokkinn áður en hann fór í Listaháskólann og hefur mikið verið að vinna við matargerð í sinni myndlist. Við höfum verið að þróa þessa hugmynd og ákváðum að tengja þetta verkefni hinu stöðuga samtali á milli listarinnar og lífsins.“ Lystarinnar með ypsiloni kannski? „Já, jafnvel. Slagorðið gæti þá verið „listin fyrir lystina“,“ segir Viktor og skellir upp úr. Þeir félagar höfðu bækistöð á Stöðvarfirði í sumar þar sem þeir söfnuðu jurtum og þróuðu uppskriftir. Hvers vegna varð Stöðvarfjörður fyrir valinu? „Ég er alinn upp fyrir austan og við kærastan mín eigum hús þar,“ útskýrir Viktor. „Þar er líka mikil menningarleg uppbygging núna. Það er verið að breyta frystihúsinu í sköpunarmiðstöð og við höfum tekið þátt í því. Það þróaðist síðan þannig að við skipulögðum hátíðina Pólar í sumar og hún leiddist út í nokkurs konar matarhátíð hjá okkur. Við fengum gefins fullt af mat og tíndum jurtir uppi í brekkunni, grilluðum góðgætið í holu og buðum upp á svaka matarveislu fyrir 200 manns.“ Viktor og Bjarki héldu líka reglulega markað með vörum frá Góðgresi á Stöðvarfirði. „Þar buðum við upp á vörurnar sem við erum að þróa gegn frjálsum framlögum, svona til að kynna framleiðslu okkar og koma þessu öllu í gang. Við vildum sjá viðbrögðin áður en við færum að setja vörurnar í reglulega framleiðslu.“ Gestum í kaffisamsætinu á morgun býðst að bragða á ýmsum vörum Góðgresis, eins og sírópi með íslenskum jurtum, krækiberjasaft og krækiberjahlaupi sem unnið er úr hratinu af berjunum „eins og amma gerði“. Líki gestum það sem þeir smakka er hægt að festa kaup á vörunum gegn vægu gjaldi, að sögn Viktors. Samsætið hefst klukkan 16 og stendur eitthvað fram eftir.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira