Með mikla matarást Ása Ottesen skrifar 17. ágúst 2013 08:00 Menningarstjóri og beikonunnandi er einn þeirra sem standa fyrir Reykjavík Beikon Festival sem haldin verður í þriðja sinn 7.september. FRÉTTBLAÐIÐ/GVA
Undirbúningur er í fullum gangi fyrir Reykjavík Bacon Festival sem verður haldin í þriðja sinn á Skólavörðustíg 7. september. Árni Georgsson, einn af stofnendum hátíðarinnar, heldur hana í samstarfi við vini sína sem koma úr öllum áttum og kalla sig íslenzka beikon bræðralagið. „Það er gaman að segja frá því að í hópnum sem kemur að hátíðinni eru læknar, lögfræðingar og kennarar. „Við komum úr öllum áttum en eigum það sameiginlegt að vera með mikla matarást og erum sérstaklega hrifnir af beikoni. Beikon er án landamæra, ég held að flestir séu hrifnir af því,“ segir Árni, sem starfar sjálfur sem menningarstjóri. „Hugmyndin að hátíðinni kemur frá Bandaríkjunum, en þar eru beikonhátíðir mjög vinsælar. Vinir okkar frá Iowa halda stærstu beikonhátíð í heimi, sem nefnist Blue Ribbon Bacon Festival, og þegar þeir ákváðu að koma í stutta heimsókn til Íslands árið 2011 fannst okkur tilvalið að koma þeim á óvart og halda litla beikonhátíð í tilefni þess. Sú hátíð heppnaðist gríðarlega vel og nú virðist þetta ætla að verða árlegur viðburður hér á landi,“ segir Árni. Rúmlega tíu þúsund manns mættu á hátíðina í fyrra til að gæða sér á beikoni í hinum ýmsu útfærslum. Í ár verður boðið upp á enn fleiri útfærslur með gæðabeikoni frá Ali Bacon og verður boðið upp á sérstaka rétti fyrir börnin. „Einnig fengum við til liðs við okkur veitingastaði í miðbænum sem ætla að vera með rétti á matseðlinum innblásna af beikoni í tilefni dagsins. Þetta er fyrst og fremst til þess að hafa gaman af, við sem stöndum að þessu erum allir miklir vinir og í stað þess að hittast og prjóna lopapeysur, þá reykjum við beikon,“ segir hann að lokum glaður í bragði.
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira