Geir Ólafs fertugur: Aldrei hugsað um aldur Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 14. ágúst 2013 13:00 "Ég er alinn upp við hljómsveitarbransann frá blautu barnsbeini og á honum mikið að þakka,“ segir Geir Ólafs. Myndir/Arnþór „
Ég ætla að halda smá veislu fyrir vini og vandamenn laugardaginn 17. ágúst og á von á nokkrum frábærum söngvurum þangað, svo sem Agli Ólafs, Gissuri Páli, Ragga Bjarna og Páli Rósinkrans,“ segir Geir Ólafsson söngvari spurður hvernig hann ætli að fagna fertugsafmælinu sem er í dag. Býst hann við að taka lagið sjálfur? „Ég get auðvitað ekki sagt nei ef ég verð beðinn en ætla samt fyrst og fremst að njóta þess að hlusta á þá sem koma og gleðja mig á þessum degi,“ svarar hann. Geir er hamingjusamur þessa dagana. Hann er ekki bara að halda dúndurafmælisboð heldur er hann líka nýtrúlofaður. Unnustan heitir Adriana og er frá Kólumbíu en starfar í banka á Spáni. Skyldi hún ætla að flytja til Íslands? „Nei, við erum í fjarbúð og fljúgum á milli en reynum að vera saman eins mikið og við getum. Þannig býst ég við að það verði enn um sinn.“ Geir er borinn og barnfæddur Reykvíkingur, næstyngstur sjö barna Ólafar Ragnhildar Ólafsdóttur og Ólafs Benediktssonar. „Ég er úr Breiðholtinu en tel mig samt ekki Breiðholtsvilling, né aðra þá sem ólust þar upp um leið og ég. Þeir sem ég þekki hafa staðið sig vel í lífinu og verið Breiðholtinu til sóma,“ tekur hann fram.Lukkuleg Við erum í fjarbúð og fljúgum á milli,“ segir Geir um samband sitt og kærustunnar Adriönu.Hann kveðst alltaf hafa lifað og hrærst í músík. „Faðir minn var trommuleikari í Sóló, Sextett Óla Ben og Lúdó og Stefáni þannig að ég er alinn upp við hljómsveitarbransann frá blautu barnsbeini og á honum mikið að þakka.“ En hvernig leggst það í Geir að vera að skríða yfir á fimmtugsaldurinn? „Ég tek nú bandarísku leiðina á þetta og segi „early forties“! En ef maður dregur andann og lifir og hugsar vel um líkamann þá skiptir engu máli hvað maður er gamall því heilsan er aðalatriðið í lífinu. Ég hef verið svo heppinn að umgangast fólk á öllum aldri og hef aldrei hugsað um aldur þess heldur frekar um hvernig því líður. Það er aðalatriðið.“
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Fleiri fréttir Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Sjá meira