Lucky Records flytur úr 67 fermetrum yfir í heila 300 í byrjun næsta mánaðar. Þar er meira pláss fyrir þær 20 til 30 þúsund vínylplötur sem eru til sölu.
„Ég er fara úr 67 fermetrum í 300. Þetta verður svaka flottur staður fyrir búðina," segir Ingvar Geirsson, eigandi plötubúðarinnar Lucky Records.
Búðin, sem hefur sérhæft sig í vínylplötum, flytur í byrjun mars frá Hverfisgötu 82 yfir á Rauðarárstíg 6, þar sem verslunin Yggdrasill og þar áður sjoppan Svarti svanurinn voru til húsa.
Á nýja staðnum hefur Ingvar meira pláss fyrir þær 20 til 30 þúsund vínylplötur sem hann hefur til sölu, auk stórs safns DVD-mynda. Einnig ætlar hann að halda þar tónleika með hinum ýmsu hljómsveitum, þar á meðal útgáfutónleika fyrir þær sem eru að gefa út á vínyl eins og komið er aftur í tísku.
„Allar plötubúðir í bænum, fyrir utan Skífuna í Kringlunni, eru pínulitlar," segir Ingvar en á Hverfisgötunni hafa aðeins tíu til fimmtán manns komist á þá tónleika sem hann hefur haldið. Hann viðurkennir samt að hann muni sakna gömlu búðarinnar sem hefur verið starfrækt í þrjú og hálft ár. „Það er svaka sjarmi yfir þessari búð en það verður sami sjarminn yfir hinni, bara stærra pláss." Þar áður var Ingvar með aðsetur fyrir vínylplöturnar sínar í Kolaportinu.
Aðspurður hvort markaður sé fyrir svona stóra plötubúð segir hann borubrattur: „Maður bara býr hann til."
Innflutningshátíð verður haldin á nýja staðnum 1.-3. mars. Á meðal þeirra sem koma fram eru Hjálmar og Epic Rain. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Flytur í 300 fermetra
