Tónlist

Íslendingar á Sónar í Barselóna

Freyr Bjarnason skrifar
Hljómsveitin Samaris spilar að öllum líkindum á Sónar í Barselóna. Fréttablaðið/Stefán
Hljómsveitin Samaris spilar að öllum líkindum á Sónar í Barselóna. Fréttablaðið/Stefán
Erlendir skipuleggjendur Sónar-hátíðarinnar hafa boðið hópi íslenskra tónlistarmanna að spila á aðalhátíðinni í Barselóna í sumar. Þá verður haldið upp á tuttugu ára afmæli Sónar. Hátíðin verður haldin í fyrsta sinn í Reykjavík um miðjan febrúar.

Á meðal þeirra eru Samaris, Valgeir Sigurðsson, Ólafur Arnalds, Mugison og Gluteus Maximus. "Við fengum tölvupóst frá þeim þar sem þeir þökkuðu kærlega fyrir samstarfið og hversu vel hefur tekist til með að koma upp svona glæsilegri dagskrá í Reykjavík. Þeir nefndu sérstaklega að það væri ekki síst vegna þess hversu góðir íslensku tónlistarmennirnir eru," segir plötusnúðurinn Margeir Ingólfsson, sem er einn af upphafsmönnum Sónar á Íslandi. "Þeir sögðust ætla að setja það í forgang að fá Íslendinga á Sónar-hátíðina í Barselóna." Um áttatíu þúsund manns sækja hátíðina á hverju ári.

Tónlistarmennirnir fyrrnefndu eru ekki búnir að samþykkja að koma fram í Barselóna en telja má líklegt að þeir þekkist boð Sónar-manna. "Sem dæmi voru þeir einróma í þeirri afstöðu að bóka Samaris, sem er mjög skemmtilegt. Þetta er mjög flott hljómsveit og ungir og efnilegir krakkar." Einnig ætla skipuleggjendur Sónar að skoða aðra íslenska flytjendur sem koma fram í Hörpu í Reykjavík.

Margeir er annar meðlima Gluteus Maximus og segir það einstakt tækifæri að fá að spila í Barselóna. "Ég hef spilað á mörgum festivölum en þetta er festivalið sem allir í mínum bransa horfa til. Ég er mjög, mjög spenntur."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×