Mörkin og færin úr sigri FH á Breiðabliki Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. júní 2013 09:02
FH-ingar unnu óvæntan 3-1 sigur á Breiðabliki í 6. umferð Pepsi-deildar kvenna í gærkvöldi. Leikurinn var í beinni útsendingu á Vísi. Berglind Björg Þorvaldsdóttir kom Blikum yfir með fallegu skallamarki á 11. mínútu eftir fyrirgjöf Rakel Hönnudóttur frá hægri. Fyrri hálfleikurinn var jafn og skemmtilegur. Blikar áttu þó góð færi undir lok hálfleiksins en tókst ekki að bæta við marki. Breiðablik varð fyrir áfalli snemma í síðari hálfleik þegar markvörður liðsins, Birna Kristjánsdóttir, varð fyrir meiðslum. Birna hafði skömmu áður bjargað frábærlega í stöðunni einn gegn einum. Hin 17 ára Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir kom inn á í mark gestanna. Ásta byrjaði frábærlega með því að stöðva hina ensku Ashley Hincks sem var sloppin ein í gegn. Litlu síðar kom Halla Marinósdóttir inn á hjá FH-ingum og í kjölfarið opnuðust flóðgáttirnar. Halla byrjaði á því að klobba landsliðskonuna Rakel Hönnudóttur áður en hún setti Sigrúnu Ellu Einarsdóttur eina í gegn. Sigrún jafnaði metin og FH gekk á lagið. Margrét Sveinsdóttir, miðvörður FH, jafnaði metin með skalla eftir sendingu Teresu Rynier. Mínútu síðar skoraði Hincks en aftur var stoðsendingin úr smiðju Rynier. FH vann einnig sigur í leik liðanna í Kaplakrika í fyrra. Þá lenti liðið einnig undir en vann sig inn í leikinn og vann 3-2 sigur. Mörkin og færin úr Kaplakrika í gærkvöldi má sjá í spilaranum að ofan.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Handbolti Fleiri fréttir Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Sjá meira