Lífið

Djarft tónlistarmyndband Miley Cyrus lekur á netið

Nýtt tónlistarmyndband Miley Cyrus, sem heitir Adore You, var lekið á netið á miðvikudagskvöld, mörgum tímum áður en átti að frumsýna það á Vevo.

Cyrus var ekki ánægð með uppátækið og lét vita af því á Twitter.



Myndbandið sýnir 21 árs söngkonuna í húðlituðum nærfötum. Við sjáum hana taka sjálfa sig upp á myndavél, og velta sér upp úr sængurfötum áður en hún hefur búningaskipti og fer í bað, svo eitthvað sé nefnt.

Sjón er sögu ríkari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.