Hvaltennur og horn eru uppistaðan 3. október 2013 12:00 Hannar ú hvaltönnum Fiona Cribben hannar skart úr hvaltönnum og tálgar skópör úr viði. Fréttablaðið/GVA „
Ég ákvað að flytja hingað til lands árið 2006 með kærastanum mínum, Einari Johnson. Hann hafði þá þýtt hluta bókarinnar Lovestar eftir Andra Snæ og lesið fyrir mig. Það málaði svo góða mynd af því hvernig Íslendingar hugsa,“ segir Fiona Cribben, fata- og skartgripahönnuður. „Við ætluðum bara að koma í heimsókn, en svo festumst við. Ég elska að vera hérna,“ útskýrir Fiona, en hún leggur nú stund á meistaranám við Listaháskóla Íslands. Til hliðar rekur hún fata- og skartgripahönnunarfyrirtæki undir nafninu Fiona Cribben. „Ég byrjaði að vinna hjá Baugi þegar ég kom hingað fyrst, sem verslunarstjóri Top Shop. Svo fór ég að vinna hjá CCP þar sem ég var að hanna fyrir Eve Online og World of Darkness,“ segir Fiona, sem er ættuð frá litlu þorpi á vesturströnd Írlands sem heitir Rathfarnham. Hún segist lengi hafa látið sig dreyma um að tálga skó úr viði. „Einn daginn var ég að horfa á sjónvarpið og sá mann sem var að vinna með við, tennur og horn. Ég hringdi í hann og bað hann um að koma með mér í samstarf. Við byrjuðum á því að hreinsa horn og tálga úr þeim alveg fáránlega skrítið skópar,“ útskýrir Fiona. „Við bjuggum til einhver fimm skópör en sáum þá að ferlið var alltof langt. Þá byrjaði ég að pæla í minni hlutum, eins og skartgripum. Ég sá að við gátum notað hornin og hvaltennur til þess að búa til skartgripina. Svo fékk ég hvaltennur algjörlega á heilann. Hvaltennur eru fjársjóður hafsins, að mínu mati,“ bætir hún við. Hvaltennurnar sem Fiona notar í hönnun sína segir hún vera úr dýri sem rak á fjöru í Hvalfirði einhverntíman á áttunda áratugnum. „Þannig að mín hönnun er dálítið „pönk“ – ætli það sé ekki anarkistinn í mér,“ segir Fiona að lokum.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira