Innlent

"Smátt og smátt eru allir þessir staðir að hverfa“

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Unnsteinn stingur upp á að minni bönd fái inni í Hörpu.
Unnsteinn stingur upp á að minni bönd fái inni í Hörpu. samsett mynd
Eins og fram hefur komið verður skemmtistaðnum Faktorý lokað þann 11. ágúst, en hann víkur fyrir hóteli í nýju deiliskipulagi.

Tónlistarmenn syrgja staðinn, sem er til húsa á Smiðjustíg, og tjá margir þeirra sig um málið á Facebook. Meðal þeirra eru Arnór Dan úr Agent Fresco, Helgi Sæmundur úr Úlfi Úlfi og Gylfi Blöndal úr Kimono.

„Reykvíska hótelplágan hefur fundið sér nýjan tónleikastað til að rústa,“ skrifar Bulsugerðarmaðurinn Svavar Pétur Eysteinsson í hljómsveitinni Prins Póló, og Unnsteinn Manúel úr Retro Stefson fjallar einnig um lokunina, og skorar á borgaryfirvöld að breyta um stefnu. Hann stingur jafnframt upp á því að búið sé til nýtt tónleikarými inni í Hörpu fyrir minni hljómsveitir.

„Hljómsveit eins og Retro Stefson hefur naumlega tök á að halda tónleika í Hörpu. Yngri bönd eða hljómsveitir sem eru að reyna koma sér á framfæri hafa ekki efni á því,“ skrifar Unnsteinn, og segir það bull að borgin eigi ekki að reka skemmtistað.

„Í hverri viku spilum við í Retro Stefson um alla Evrópu á "opinberum" skemmti- og tónleikastöðum sem eru vel reknir af metnaðarfullum bókurum, en í eigu borgar eða ríkis.“

Unnsteinn beinir orðum sínum að meðlimum borgarstjórnar og spyr hvort ekki sé ráð að hugmyndin sé skoðuð.

„Smátt og smátt eru allir þessir staðir að hverfa. Hemmi og Valdi, Faktorý, NASA og fleiri,“ segir Unnsteinn í samtali við Vísi.

„Ég finn það sem atvinnutónlistarmaður á Íslandi að ég er alltaf að spila á skrýtnari og skrýtnari stöðum sem eru jafnvel ekki tónleikastaðir. Það er bara út af vöntun.“

Unnsteinn segir að það myndi líta mjög vel út fyrir borgaryfirvöld að breyta um stefnu.

„Það er lítið eftir núna í Reykjavík og fólk er búið að vera með og á móti, en mér finnst vanta nýjar hugmyndir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×