Fyrsta leikna mynd Elsu Maríu 27. september 2013 10:00 Elsa María Jakobsdóttir frumsýnir fyrstu leiknu myndina sína á kvikmyndahátíðinni RIFF í dag. MYND/þORBJÖRN iNGASON „
Þetta er pínulítil stuttmynd sem var undirbúin í algjöru brjálæði á fjórum dögum. Tökurnar tóku tvo daga og myndin kostaði ekki krónu,“ segir sjónvarps- og kvikmyndagerðarkonan Elsa María Jakobsdóttir um heimildarmyndina Megaphone. Myndin, sem er leikin heimildarmynd, verður frumsýnd á RIFF í dag. Megaphone er fyrsta leikna myndin sem Elsa leikstýrir og fóru tökur fram í október á síðasta ári. Með aðalhlutverk fara Salóme Rannveig Gunnarsdóttir og Hjörtur Jóhann Jónsson. Einnig fer leikarinn Damon Younger með aukahlutverk í myndinni. Spurð út í myndina, segir Elsa að hún sé Reykjavíkursaga og svefnherbergisdrama sem fjallar um einnar nætur gaman sem fer inn á grátt svæði þar sem tveir aðilar eiga ólíkar upplifanir. Þetta er saga sem ég veit að margar konur og karlar, sem hafa séð myndina, tengja við á óþægilegan og ónotalegan hátt. „Ég hef mikinn áhuga á að segja sögur kvenna og þá sérstaklega frá þeirra upplifunum af kynlífi,“ útskýrir hún.Stillur úr myndinniKvikmyndatökumaðurinn Árni Filippusson, sem tók meðal annars upp íslensku þættina Fangavaktina, sá um tökur og segir Elsa að það hafi verið nauðsynlegt að hafa einhvern reyndan með á setti. „Ég vildi vinna með Árna og fá hann til þess að skjóta myndina. Hlutirnir æxluðust svo þannig að Árni lét mig vita að hann væri tilbúinn í tökur og við byrjuðum fjórum dögum síðar. Þetta gekk eins og í sögu og lítið mál var að manna myndina, enda vilja allir vinna með rokkstjörnu eins og Árna,“ segir Elsa María og hlær. Megaphone hefur fengið frábærar viðtökur og hefur hún verið valin til sýninga á International Film Festival í Helskinki og á Uppsala International Short Film Festival. „Það er rosalegur heiður að mynd sem tók svona stuttan tíma í vinnslu, komist að á jafn virtum hátíðum og þessar tvær eru,“ segir Elsa að lokum.
Mest lesið „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Fleiri fréttir „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Sjá meira