Lífið

Drekkur átta vatnsglös á dag til að halda sér í formi

Fyrirsætan Rosie Huntington-Whiteley segir það hægan leik að halda sér í góðu formi og halda húðinni sléttri og fínni.

Rosie deildi mynd af bókinni You're Not Sick, You're Thirsty! Water for Health, for Healing, for Life eftir Dr. Batmanghelidj á Twitter-síðu sinni og segist halda sér með því að drekka átta vatnsglös á dag.

Á rauða dreglinum.
"Frábær bók sem ég er að lesa. Við höfum alltaf vitað að vatn er gott fyrir okkur. Uppgötvið nú af hverju. Ert þú búin/n að drekka átta glös í dag??!" skrifaði Rosie við myndina.

Með kærastanum, leikaranum Jason Statham.
Það eru væntanlega fáir sem trúa því að hún geri ekkert annað en að drekka vatn til að halda sér í formi en átta glasa reglan er allavega góð.

Bókin góða.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.