Með jólin í Excel Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 4. desember 2013 14:00 mynd/valli
Kolbrún Björnsdóttir stýrir spjallþætti á Stöð 2 á miðvikudagskvöldum. Hún verður með áhorfendum allt til jóla en gefur sér góðan tíma í jólaundirbúninginn. „Það væri vel hægt að skrifa heila bók um jólin mín,“ segir sjónvarpskonan Kolla sem sýnir fyrirhyggju fyrir hátíðarnar. „Ég skipulegg allt sem tengist jólagjafakaupum í Excel-skjali og geri dálka fyrir hugmyndir og hvað ég kaupi, hvað búið er að kaupa, pakka inn og afhenda. Þannig gleymi ég engri gjöf.“ Kolla heldur jólin með manni sínum, móður og þremur börnum þeirra hjóna en uppkomin stjúpdóttir hennar býr norðan heiða. „Við njótum þess að vera saman í rólegheitum og erum að skapa okkar eigin jólahefðir. Ein þeirra er að hafa lokið öllum jólaundirbúningi og tiltekt á Þorláksmessu og þá kveikjum við upp í arninum á Þorláksmessukvöld og horfum saman á jólamynd. Það er yndislegt að eiga ekkert eftir á aðfangadag annað en að vakna saman og bíða jólanna í ró og friði. Þá eldum við jólalega súpu og bjóðum gestum sem koma með jólapakka upp á súpu og konfekt í stresslausu andrúmslofti,“ segir hún. Fyrir jólin í fyrra fór Kolla á námskeið til að læra að baka Sörur og þær ætlar hún að baka aftur á aðventunni nú, sem og lakkrístoppa fyrir soninn. „Ég kaupi líka stundum tilbúið smákökudeig til að henda í ofninn og fá góða lykt í húsið,“ segir Kolla sem leggst yfir flókin púsluspil á hverjum jólum og nagar kalt hangikjöt með. „Stundum fæ ég púsluspil í jólapakka en yfirleitt slæ ég varnagla við að það gerist ekki og kaupi mér púslið sjálf. Þá legg ég undir mig borðstofuborðið eftir hátíðarverðinn á aðfangadagskvöld og keppist við að ljúka púslinu áður en gamlárskvöld rennur upp.“ Kollu þykir mest um vert að gleðja börnin sín á jólunum og slaka á með fjölskyldunni þegar friður jólanna færist yfir.„Mér finnst of mikil áhersla á veraldleg gæði á jólum og legg til að við leggjum meiri rækt við samveru og nánd. Við gætum til dæmis gert jólin meira andlega nærandi með því skrifa innihaldsrík jólabréf til ástvina okkar í stað gjafa sem oft er minni þörf á.“
Mest lesið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Fleiri fréttir Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Sjá meira