Allt sem gat farið úrskeiðis fór úrskeiðis 6. nóvember 2013 15:00 Mynd/einkasafn „
Fatalínan mín er byggð á útskriftarverkefninu mínu sem bar heitið The World Through My Eyes þar sem ég bjó til flíkur og textíl sem endurspegluðu heimsálfurnar. Ég valdi tvær heimsálfur, Suður- og Norður-Ameríku, og bjó til línu sem gekk upp fyrir almenna sölu,“ segir Rakel, sem útskrifaðist sem fatahönnuður í fyrra. Í kjölfarið vann hún hina virtu ID-hönnunarsamkeppni á Nýja-Sjálandi og tekur nú þátt í tískusýningunni Mittelmoda í Mílanó á Ítalíu. „Mittelmoda er ein af stóru keppnunum í Evrópu. Þetta er keppni fyrir nýútskrifaða fatahönnuði þar sem við fáum tækifæri til að sýna útskriftarlínuna okkar. Alls komast 23 hönnuðir alls staðar að úr heiminum inn á þessa sýningu. Ég hef heyrt að margir keppendanna hafi fengið starf hjá hinum ýmsu tískuhúsum en ég er svo sem ekkert að búast við því að meika það. Vonandi hitti ég gott fólk sem getur hjálpað mér að fóta mig í þessum iðnaði og svo er þetta frábær skóli til að fá leiðbeiningar frá dómurum og öðrum sem taka þátt,“ segir Rakel. Þessi upprennandi fatahönnuður opnaði vefverslunina sína á mánudag en hún rekur hana ásamt manni sínum Eiríki Ragnarssyni. „Viðtökurnar hafa verið ótrúlega góðar. Við erum búin að fá margar jákvæðar athugasemdir og fyrstu pantanirnar eru meira að segja farnar að laumast inn frá ýmsum stöðum í heiminum. Mig grunaði alls ekki að það myndi gerast á fyrstu dögunum,“ segir Rakel. Fæðing línunnar var þyrnum stráð. Ljósmyndari: Marella Steinsdóttir Fyrirsæta: Curmiah Lisette Make-up artisti: Molly Turrell„Allt sem mögulega gat farið úrskeiðis fór úrskeiðis. Langerfiðast var að panta og láta prenta efnið með minni hönnun. Það er vonlaust að finna hverjir eru á viðráðanlegu verði og loksins þegar ég fann nokkra var meira en helmingurinn af efninu gallaður eða ónýtur. Þetta endaði með því að síðasta efnið kom daginn fyrir myndatökuna og ég svaf ekki dúr þá nótt. Sem betur fer var ljósmyndarinn minn, Marella Steinsdóttir, alveg með þetta og bjargaði mér,“ segir Rakel. Hún hefur verið búsett í London í sex mánuði. „Ég kann vel við mig en það tók langan tíma að venjast umhverfinu. Ég þekkti ekki marga og skildi hvorki upp né niður í því hvernig þessi iðnaður virkaði. Að vissu leyti þurfti ég að byrja á byrjuninni. Ég er búin að vera mjög heppin þar sem ég hef kynnst alveg frábæru fólki. Nú er nýr kafli hafinn og ég er strax farin að huga að næstu línu.“Ljósmyndari: Marella Steinsdóttir Fyrirsæta: Curmiah Lisette Make-up artisti: Molly TurrellLífið á Facebook.
Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Emily in Paris-stjarna látin Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Buxur með opið klof vöktu athygli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Sjá meira