Engin rannsókn hafin hjá Innanríkisráðuneytinu Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 25. júní 2013 19:43
Gögnin sem Snowden lak til fjölmiðla varpa ljósi á víðtækar persónunjósnir breskra og bandarískra yfirvalda og það hvernig erlendar njósnastofnanir fylgjast með gagnaflutningum í gegnum ljósleiðara til að vakta einstaklinga í gegnum netið. Innanríkisráðuneytið ætlar að hefja rannsókn á málinu og krefja bresk stjórnvöld um svör. Tæplega hundrað prósent allra stafrænna gagna fljóta heimshornanna á milli í sæstrengjum. Hér nægir að benda á hinn íslenska Farice-1 sæstreng, sem er raunveruleg lífæð Íslands við hinn stafræna umheim. Íslensk fjarskiptafyrirtæki fylgja regluverki Póst- og fjarskiptastofnunar um meðferð slíkra gagna innanlands, en það er hinsvegar erfitt að verja þessi gögn þegar komið er út fyrir landsteinanna. Í gögnum sem Snowden lak til fjölmiðla á dögunum kemur fram hvernig breska leyniþjónustan hefur nýtt sé ljósleiðaratengingar við persónunjósnir. Lekamálið teygir anga sína víða, þar á meðal hingað til lands enda hefur spurningarmerki verið sett við sjálft netöryggi landsins. Samkvæmt heimildum úr Innanríkisráðuneytinu er rannsókn á uppljóstrunarmálinu komin stutt á veg. Engu að síður er fullur vilji af hálfu ráðuneytsins að taka málið fyrir af krafti. Fyrstu skref rannsóknarinnar munu því taka til beiðni eða kröfu um skýringu á persónunjósnum breskra yfirvalda og hvort að þær taki til Íslands. Í kjölfarið verða fulltrúar Póst- og fjarskiptastofnunar kallaðir á fund ásamt fulltrúum frá Persónuvernd og Ríkislögreglustjóra. Jafnframt mun sérstakur starfshópur um netöryggi fjalla um lekamálið, sem og öryggi netstrengja, ljósleiðaratenginga og fjarskiptavirkja landsins. Málið verður tekið fyrir til umræðu á sumarþingi seinna í þessari viku. Þar verða málefni Snowdens rædd sem og netöryggi landsins. En stóra spurningin er þessi: Hvað getur litla Íslands gert gagnvart njósnum breskra yfirvalda? „Fólk getur sannarlega gert eitthvað til að verja sig," segir Smári McCarthy, pírati. „Til dæmis að dulkóða tölvupóstinn sinn eða nota VPN-tengingar. En síðan spurningin hvað stjórnvöld geta gert og það er í raun voðalega fátt. Þetta er vettvangur þar sem úrræði stjórnvalda eru takmörkuð. Þau gætu náttúrulega reynt að uppfræða fólk og kenna dulkóðun. Síðan er hin hliðin, að beita pólitískum þrýstingi á þau lönd sem við vitum að eru að njósna um okkur" Óvíst er hver eftirköst persónunjósna Breta verða. Þó hefur Persónuvernd, tekið höndum saman við sambærilegar stofnanir í Evrópu og krafist svara frá Bretum og Bandaríkjamönnum.UppfærtEngin rannsókn hafin hjá Innanríkisráðuneytinu vegna meints uppljóstrunarmálsEngin sérstök rannsókn hefur verið sett af stað vegna svokallaðs uppljóstrunarmáls hjá Innanríkisráðuneytinu. Innanríkisráðherra hefur heldur ekki beitt sér í málinu eða komið að því, eins og skilja hefði mátt af fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Innanríkisráðuneytinu nú í kvöld er almennt í gangi eftirlit með meðferð persónuupplýsinga og vegna netöryggis. Verkefni um netöryggi var sett á laggirnar á þessu ári og fjallar almennt um net og gagnaöryggi alveg óháð þessu máli. Engin ákvörðun hefur því verið tekin um að fara í sérstaka rannsókn vegna þessa máls, en fréttin í kvöld var þannig frekar um það sem myndi gerast ef á einhverjum tímapunkti kæmi til rannsóknar á umræddu máli eða einhverju álíka.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira